24.12.2007 | 01:09
Þetta er nú meira ruglið
Jæja fyrir örfáum mínútum labbaði ég inn í herbergið að gá að litla unganum mínum, strik honum um vangann og legg höndina á ennið hans því að hann var búin að vera með smá kommur í dag og þá er hann bara orðinn brennandi heitur og kominn með 39.5 stiga hita og ljótan hósta svei mér þá hvað ég mundi gera til þess að skipta við hann bara svo honum liði betur og hann gæti notið jólanna í botn.
Ég gaf honum stíl og svo eru góðar líkur á að fyrsta verk dagsins á morgun verði læknisferð, hann fór til læknis út af þessum veikindum um daginn og læknirinn sendi hann í blóðprufu til að athuga með ónæmiskerfið og við fengum semsagt út úr því að honum vantar eitthvað í ónæmiskerfið sem heitir IGG2 hvað það er veit ég ekki því miður þar sem að ég fékk niðurstöðurnar frá heimilislækninum en ekki lækninum sem sendi hann í blóðprufuna sem er ofnæmislæknir og það er nú bara saga út af fyrir sig.
En heimilislæknirinn gat þó sagt mér að það væri algengara að börnum vanti IGA hvað þetta allt saman þýðir veit ég því miður ekki en fæ að vita strax eftir áramót. Við vissum þó bæði að hann er viðkvæmur fyrir sýkingum og flensu, mér langar stundum bara að setja hann inn í plastkúlu eða þannig það er bara svo vont fyrir hjartað mans þegar litli unginn mans er veikur.
Jæja það er bara að vona það besta svo allir geta verið hressir og kátir um Jólin
Gleðileg Jól öll sömul
Kv
Erla Jotti & Davíð
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.