5.12.2007 | 23:05
Jólahjól.
Jæja hvað segið þið gott?, asskoti er maður búin að vera latur að blogga hvað þá taka myndir en þið verðið bara að fyrirgefa þar sem að það er brjálað að gera hjá mér þennann mánuð.
Jóhann Otti er því miður ekki enn farinn að labba en er sammt orðinn mun sjálfsöruggari, í síðustu viku fékk hann gubbupest sem var nú ekkert alvarlegt nema hvað ég lagðist í hana daginn eftir og hef ALDREI fengið aðra eins gubbupest og ég get fullyrt það að að eru nokkur ár síðan ég fékk hana síðast. Að öðru leiti höfum við verið heilsuhraust. Amma Gunna var að kenna Jóhann Otta að benda á nefið á sér þegar maður spyr hann hvar er nebbinn sem er alveg gasalega krúttlegt því stundum þá bendir hann ekki á nefið heldur borar upp í það. Hann stækkar og er farinn að "spjalla" alveg helling, skapið stækkar líka með en hann tapar oftast ef að hann ætlar að fara reyna að stjórna, svefninn er orðinn alger draumur núna þá rétt fyrir háttinn þá er hann knúsaður aðeins lagður niður í rúmm boðið góða nótt og svo fer hann oftast að sofa það eru þó stundum smá mótmæli en það tekur ekki lengur en 5-10 mín svo er bara sofið alla nóttina.
Jólin eru bara á næstu grösum og við eigum ekki eftir að kaupa margar jólagjafir sem betur fer og stefnan er að klára þær í næstu viku en jólakortin eru eitthvað að lenda á hakanum hjá mér. Það verður gaman að sjá hvernig Jotti á eftir að bregðast við öllum pökkunum, jólasveininum já og bara jólunu. MMM svo hlakkar mig svo til að fá hammarahrygg og brúnaðar nammi,talandi um mat jeremísa þar næstu helgi þá er jólahlaðborð í hádeiginu í vinnuni á föstud, jólahlaðborð í vinnuni hjá Davíð á laugard og jólaboð hjá fjölskylduni hjá Davíð á sunnud WHAT át helgi dauðans nee og þó þetta þýðir bara að maður þarf að draga framm eithhvað sem heitir agi og vera ekki að troða ofan í sig öllu sem maður langar í já þetta reddast.
Ég komst að því um daginn hvað það eru mikil forréttindi að eiga uppþvottavél, sko við höfum átt uppþvottavél síðan við fluttum hingað inn og ég var heillt sumar að safna fyrir(ýkt stolt) nema hvað að hún var bara algjört DRASL og var búin að vera að hökkta í nokkra mánuði, ég hringdi í Byko og kvartaði og þeir gáfu mér bara innleggsnótu af andvirði vélarinnar sem ég átti fyrir. Ég var bara illa sátt og loksins létum við að því að kaupa nýja og ég segji bara VVÁÁ hvað það er mikill munur þetta er bara æði af öllum hlutum sem ég á bíl, síma o.fl þá þykir mér mest vænt um uppþvottavélina, ást við fyrstu sín.
Jæja ég ætla fara að sofa.
Kv. Erla og Jottinn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ bara smá innlits kvitt, en jotti minn er algjör draumur, það er sko æðislega gaman að eiga svona Afastrák, ekki síst þegar hann tekur Afa framyfir Mömmu sína, hehehe. Hlakka til að sjá ykkur á morgun, Kær kveðja Afi
Jón Svavarsson, 7.12.2007 kl. 01:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.