21.9.2006 | 18:24
34.vikur
Jæja 34.vikur allt að gerast litli kútur dafnar vel í bumbunni minni hann kúrir bara og sprikklar svo bara inn á milli en ekki búin að skorða sig enda nægur tími. Ég var sammt búin að semja við hann að vera ekkert á síðustu stundu með það við ætlum að vera með allt á hreinu þegar við förum að vinna í því saman að koma honum í heiminn
Síðan er það foreldranámskeiðið og dagurinn sem við biðum eftir heimsóknin á spítalann. Jú þetta var áhugavert við vitum allavega hvert við eigum að fara og jú það er eins gott að hafa það á hreinu það er ekki cool á vera kannski með 5-8 í útvíkkun og bullandi hríðir og hafa ekki hugmynd um hvert maður á að fara neibb ekki cool.
Við fórum og skoðuðum tvær mismunandi fæðingarstofur sem var mjög gaman maður sá þetta pínu fyrir sér að vissu leiti. Fæðingarstofurnar voru mikklu hrárri en ég bjóst við ég var svo sem ekkert búin að gera einhverjar rosa væntingar en ég hélt að þetta væri kannski pínu huggulegra en greinilega ekki, þetta voru lítil rúmm og ekki gat ég séð neina lampa til að gera þetta kannski huggulegra en svona er þetta. Þær ættu kannski að fá Mörthu Stewart til að koma og gera Makeover Síðan skoðuðum við hreiðrið sem er staður fyrir konur að koma og hvíla sig á eftir fæðingu eða jafnvel fæða þarna en ekki er gert ráð fyrir að konur séu lengur en í sirka 24 tíma minnir mig en. Þetta er svona eins og hótelherbergi queensize rúmm þannig að pabbinn getur líka verið þarna og kúrað litla krílið og konuna sína. Því miður sáum við ekki fæðingarstofuna á hreiðrinu því þær voru báðar uppteknar það voru einhvejar kellingar að gjóta í báðum stofonum: Þ
Síðan sáum við líka sængurkvennagang sem er staður fyrir konur sem hafa kannski lent í keisara til dæmis og það var bara fróðlegt. Annars var þetta mjög gaman maður komst kannski skrefinu nær þessum atburði þó það væri ekki nema í huganum.
Hér er fróleikur um barn á 34.viku
Nær öll líffæri barnsins eru fullþroskuð fyrir utan lungun. Barnið þjálfar sig af krafti fyrir öndun en þar sem ekkert loft er í leginu tekur barnið inn vökva sem veldur oft hiksta. Hár á höfði barnsins byrja oft að vaxa hér og barnið reynir að depla augnlokunum. Barnið sýnir sterk viðbrögð þegar það heyrir kunnuglegar raddir. Hér er barnið 43 cm langt og 2,3 kg að þyngd.
Því miður get ég ekki set inn myndir núna þar sem ég er ekki í réttu tölvunni til þess en ég lofa ég reyni að fara drífa mig í því.
Annars vil ég minna á að það er uppskeruhátíð HK-inga næsta laugardag 23. september sem verður haldin í HK heimilinu miðaverð er 1000kr, húsið opnar 21:00 og skemmtun stendur til 02:00 og veigar á góðu verði og það verður DJ og trúbador og kynþokkafyllsti rauðhærði Kópavogsbúinn að afgreiða á barnum með brjálæðislega stinnann rass........(Davíð Þorsteinsson). Þannig ég hvet alla til að mæta og fagna góðu gengi HK í sumar og sýna sig og sjá aðra og drekka fullt af bjór fyrir mig því ég og litli ætla að vera heima að kúra og horfa á Despó eða eitthvað.
Reyni að skella inn myndum um helgina síðan er bara næsta blogg á næsta Miðvikudag þá verða komnar 35.vikur, ný vika byrjar reyndar að telja á þriðjudegi en égt ætla sammt að skrifa á miðvikudegi ég er líka að fara í mömmuskoðun næsta miðvikudag og þá fáum við að hlusta á hjartað í litla kút, síðan er gaman að segja frá að eftir næstu skoðun fer ég hálfum mánuði seinna í næstu og síðan fer ég einu sinni í viku sem þýðir að það fer að styttast verulega í þetta.
Það er einnig gaman að segja frá hvað margir halda að ég sé búin að eiga, svona kunningjar og svona sem maður heyrir sjaldan í þeir spurja mann "hva ertu búin að eiga" neibb ég er sett 31.október þá er það á hreinu:Þ
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.