Spítalaferðin sem var fyrir viku síðan.

Já það er sko kominn tími á smá fréttir.

Við urðum heldur betur hrædd síðasta föstudag þegar dagmamman hringdi í okkur og sagði að litla beibíið okkar væri orðin lasinn, nema hvað ég var ekki á bíl en tengdamamma mín gat sótt strákinn og kom svo og sótti mig í vinnuna og ætlaði að skutla okkur heim.

Á leiðinni heim líst mér ekkert á blikuna því að Jotti sat bara í bílstólnum og gaf frá sér þessi hræðilegu stunuhljóð og var vælinn og var bara eins og hann væri hálf kvalinn, þannig að ég bið hana um að skutla mér bara beint upp á heilsugæslu sem er nánast við hliðina á okkur. Þar labba ég upp og sagði að hann þyrfti að komast strax undir læknishendur þar sem að það væri eitthvað að og ég vissi bara ekkert hvað það væri, þetta yndislega starfsfólk bjargaði því og læknir kom og skoðaði hann og sá að það var greinilega ekki allt með feldu og þetta væri ekkert sem hann gæti læknað og vildi bara senda mig niður á barnaspítala.  Þar sem að ég var bíllaus þá rauk ég bara með hann í Taxa og beint niðureftir, þar löbbuðum við beint inn á bráðamóttöku og þar var hann mældur,tekið sýni og haft hann tengdann við vél sem mælir súrefnismettunina hjá honum.  Síðan vorum við send í röngen myndatöku með hann og þá kom í ljós að hann var komin með lungnabólgu í annað skipti og til að toppa það þá var hann með streptakokka líka.  Þá var farið í að setja upp æðalegg sem er nú bara blog útaf fyrir sig þar sem að þær vildu setja hann upp í hausinn á honum því hann var svo æðaber á ákveðnum stöðum og það gekk nú misvel, loksins tókst það og þá var honum gefið lyf í æð og stíll við tók bara smá bið á skoðunarstofunni og fylgst var með honum ásamt því að honum  var gefinn annars skammtur af lyfinu.

Þeir voru fyrst ekki vissir hvort þeir vildu halda honum yfir nótt en þegar líða tók á kvöldið þá var hann ekki orðinn eins hress og þeir hefðu vilja sjá hann vera þannig að við fengum sér stofu til að gista í og vorum í einangrun út af streptakokkunum.  Svo var honum gefið lyf einusinni um nóttina, við vöknuðum síðan um 10 leytið og þá var minn barasta hress og kátur þannig að hann fékk að  fara heim með lyf og fyrir mæli um það að hann þyrfti að ná að vera undir 38 st hita í 2 daga áður en hann færi aftur til dagmömmunar.

Því markmiði var náð núna á fimmtudaginn og hann var rosalega feginn að fara og hitta krakkana enda búin að fá nó af mömmu sinni sem var búin að hanga með honum meirihlutan af veikindonum.  Hann  hefur verið almennt hress en smá vesen með lyfið fyrst fékk hann rosalegan niðurgang af því en þetta er allt að smella hjá okkur. En stunuhljóðin voru bara út af því að hann var FÁRVEKUR en mömmu og pabba hjörtu voru smeik um litla molann sinn.

Þar hafið þið það ég ætlaði að vera búin að blogga um þetta en hef því miður ekki gefið mér tíma til þess fyrr en núna.

 

Kv Erla og Jotti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æjj greyið litli snúðurinn.... hræðilega vont að vera með streptakokka ... en gott að litli er að ná sér    haldiði að mín sé ekki bara búnað kaupa jólagjöf handa honum Jotta litla... er bara rétt að vona að hann eigi þetta ekki, en þið getið þá vonandi bara skipt því  ..kemur í ljós.

     Hafið það gott dúllurnar... bið að heilsa öllum  

 Kv. Dagbjört frænka

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband