13.11.2007 | 22:10
news
Sæl öll sömul nú er komin tími á fréttir, það er allt gott að frétta héðan Jotti vex og dafnar en er samt alltaf jafn nettur þessi dúlla með sínu litlu mjaðmir og læri. Hann fékk sýkingu í augun núna um daginn og var eldrauður með gröft allann hringinn ekki smart ég beit en við skelltum okkur til doksa og hann skrifaði upp á dropa fyrir okkur og er hann oðinn mun skárri núna. Nú fer að styttast í Jólin og ég veit að Jotti á ekki eftir að hafa neitt vit á hvað er í gangi þótt að honum eigi eflaust eftir að finnast Jólasveinninn og jólatréið skrýtið svo sjáum við bara hvort hann fattar að opna pakkana. En við ætlum að fara á jólaball hjá Frímúrurum sem er ball sem ég fór alltaf á þegar ég var lítil en núna er komið að því að fara með litla barnið mitt á það já það verður öðrvísi og eflaust gaman.
Ég skellti mér í sund í kvöld og ó mæ god hvað það var gott, sko ég var búin að vera lengi á leiðinni en drullaði mér aldrei af stað en í kvöld var engin afsökun og ég sé sko ekki eftir því að fara. Eftir þessa hressu sundferð þá langar mig að reyna að halda þessu áfram og fara tvisvar í viku það er draumurinn.
Jæja ég er farinn að tjilla.
Adios...Erla og Jóhann Otti
p.s. 41 dagar til jóla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott mynd af Jóhann Otta. Var að reyna að skrifa í gestabókina hjá þér en það tekst ekki. Er búin að reyna 3 sinnum hérna í tölvunni í vinnunni
En ég er þrjósk og gefst ekki upp, ætla að prufa heima líka.
Kveðja,
Erna
Erna & Kristófer Júlían (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.