31.10.2007 | 22:26
Kominn tími á gott blogg...
Jæa það er nú aldeilis. Að frétta af okkur er það að við gerðum smá uppgötun um daginn ég og tengdamamma sem er sem sagt að þegar Jóhann Otti labbar(hann er ekki byrjaður að labba sjálfur) þá er vinstri löppin svo útskeif miðað við hægri og það er alveg áberandi, nema hvað þar sem að ég er nú að vinna á hjálpartækja miðstöðinni þar sem iðju- og sjúkraþjálfar eru að vinna þá talaði ég við einn sjúkraþjálfann og hún bauð mér að koma með strákinn og láta reyndar annan sjúkraþjálfa kíkja sem hefur unnið mikið með börnum og sérhæfir sig í skóm fyrir börn undir 18 og hún leit á hann, hún vildi meina að hann væri doldið laus í ökklunum og örlítið siginn á vinstri fæti, ég ætla nú ekki að fara að útskýra hvað það er að vera siginn. Þetta er ekkert alvarlegt en hún vildi að ég mundi kaupa extra stífa skó handa honum svo hann fengi stuðning um ökkla og við ætlum að kaupa inniskó svo ætlar hún að skoða hann aftur eftir 2 mánuði. Hún sagði við mig að yfirleitt eru börn ekki sett í bæklunarskó fyrir 2 ára aldur en ef að það sem er að er farið að hamla því að barnið lærir að labba þá er það sett í þessa bæklunarskó.
Svo fórum við í ungbarna eftirlit og minn er bara orðinn 9.550g og 78 cm og hann fylgir sinni línu, hann var sprautaður og var sko ekki sáttur það var grátið á þessa vindu hjúkku en eftir smá knús frá mömmu og pabba þá varð allt allt í lagi þetta tók nú ekki langann tíma þannig að this is it.
Við fórum til svefnráðgjafa síðastliðinn mánudag því ég bara ákvað hér og nú að nú skal drengurinn sofa betur, þetta var svo sum eitthvað HUGE vandamál en ég er bara þrjósk og vill að hann sofi betur og fái hvíldina sem hann þarf. Þannig að við fórum spjölluðum við hana og fengum plan sem við byrjuðum á strax á mánudagskvöld. Sko þetta er ekkert rosa flókið en það voru margir punktar sem hún sagði okkur og meika fullkomið sence en maður bara hefur ekki vit á að fatta, svo ætlum við a nýta tækifærið og hætta með pelann og ég verð að segja að ég get ekki kvartað yfir því, því að það er svo helv dýrt að kaupa þessa soya og rís mjólk ég tími því nú alveg en er feginn að það hefur minnkað svo um muni því ferna af svona er fjórfallt dýrari en venjuleg mjólk. Það hefur gengið vel og erum við strax að sjá framfarir, það hefur tekið svona 30 mín að svæfa sem er miklu minna en ég hafði gert mér í hugarlund. Þetta getur verið doldið erfitt samt það er sko þannig að fyrst þá fer hann sem sagt inn í rúm kl 21 og ég eða Davíð eigum að vera inn í herberginu enn svona bara í dyrinni og við meigum vera gera allt nema horfa á sjónvarpið og tala í símann ég hef t.d. verið að brjóta samann þvott, hann á auðvitað að liggja en litli þrjóskupúkinn stendur upp og fer að gráta, ég á að láta sem ég sjái hann ekki og ef hann bara grætur þá á ég að bíða í svona 2-3 mín og leggja hann niður og gera þetta aftur og aftur ef hann svara alltaf með því að standa upp og fara að gráta og svona má þetta ganga í 20-30 mín og ef hann er ennþá að gráta þá þá má fara og setjast við rúmmið.
Það hefur ekki komið til þess að það hefur þurft og er ég mjööög ánægð með það hann meira að segja sofnaði sjálfur í kvöld mér til mikkillrar gleði svo þegar hann kemmst upp á lagið með þetta þá ættum við ekki að þurfa hanga þarna inn í herbergi, svo bað hún okkur um að skipta þessu niður sem sagt að það tæki bara annað foreldrið fyrstu 3 dagana og síðan hitt næstu þrjá og það væri fínnt að hafa það svona fyrst og á meðan þá á foreldrið sem á ekki "vaktina" að fara út úr íbúðinni en það er bara fyrst sem betur fer og foreldrið sem fer á að kveðja barnið sérstaklega svo að barnið viti að það sér ekki heima og grenji ekki eftir því mjög sniðug pæling, ég sem sagt byrjaði og fyrsta vaktin hjá Dave er á morgun. Svo með að vakna á nóttunni þá hefur hann gert það síðastliðnar tvær nætur EN ég hef alltaf bara lagt hann niður og síðan skriðið upp í rúm aftur og þetta virkar því hann sofnar strax aftur og vonandi endar þetta þannig að hann hætti að vakna sem ég á nú alveg von á, en ég leyfi ykkur að fylgjast með.
Það varð smá slys á Jóhann Otta í dag hann semsagt datt fram fyrir sig náði svona nokkurn veginn að setja hendurnar fyrir framan sig en tókst samt að bita svona harkalega i vörina þannig að það koma smá blóð en svo lagaðist það mamma hjúkraði stráknum sínum en svo kom bólgan og þá var hann með efri vör eins og Angelina Jolie en þetta var bara smá Hans klaufi þarna á ferð.
Svo næstkomandi föstud þá ætla ég að vera aðeins á undan áætlun og halda upp á afmælið mitt og bjóða bara í svona fullorðins partý heim og það verður bara familíann og tengdaforeldrar mínir en þau ætla svo að vera svo væn og taka síðan strákinn í nætur pössun því það mundi ekki virka að hafa svona marga gesti og hann sofandi inni, þá reyndar þurfum við að finna einhvern góðan milliveg á svefn planinu okkar þetta eina kvöld en ég hef ekki áhyggjur af því.
Snjórinn sem ég pantaði kom um daginn og ég var svo glöð en hann var eiginlega allt of stutt svo fann ég hvergi snjóþotu handa Jóhann Otta bömmer það vilja allar verslanir skreyta með jólaskrauti í nóv ef ekki okt en það hefur enginn vit á því að vera með snjóþotu tilbúna fyrir Jottann össs, það kemur nú fyrr eða síðar.
Jæja ég er orðinn sibbó er ætla að fara að kúra ég er líka komin með blöðrur á puttana ég er búin að blogga svo mikið.
Adios Erla og Jottinn
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 1.11.2007 kl. 09:02 | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
WOW þetta virkaði ekki svona MIKIÐ þegar ég var að skrifa þetta.
Erla Júlía Jónsdóttir, 31.10.2007 kl. 22:27
ég hugsaði einmitt til þín þegar ég sá snjóinn um daginn
Kallý, 2.11.2007 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.