14.10.2007 | 17:28
Nýjar Myndir og video
Jæja ég var víst búin að lofa bloggi sem er sko ekki vandamálið. Já maður er búinn að vera eitthvað latur í þessu.
Það sem er að frétta er að Jotti er búin að taka tvö skref en það gerðist hjá dagmömmuni við ekkert smá stoltir foreldrar, en því miður hefur það ekki gest aftur en við biðum bara spennt. Næsta fimmtudag verður þessi gullmoli 1 árs ohh það verður ekkert smá gaman, hugsið ykkur heilt ár bara flogið burt þetta líður svo hratt að maður þarf að passa sig á því að þetta líði ekki of hratt. Við ætlum að halda upp á það næsta sunnudag og þá verður boðið í kaffi og með því þannig að það fer að líða að því að undirbúningur fari að hefjast. Annars er ekkert planað á fimmtudaginn sjálfan enda verður nú um hullumhæ á sunnudaginn en við sjáum ti. Svo vil ég þakka ömmu og afa í Svíþjóð fyrir sendinguna Takk kærlega fyrir þetta .
Við tókum okkur til og prófuðum um daginn að gefa honum skyr og hvað haldið þið hann fékk ekki óþols viðbrögð en ég veit samt að hann getur ekki fengið ný-eða léttmjólk en það er gaman að hann geti borðað skyr það getur verið svo gott þannig að það eru bara góðar fréttir.
Nú hef ég hafið jólagjafainnkaupin ég er bara svo mikið skipulagsfrík að ég vil vera tímanlega í þessu það er svo gott að losna við örtröðina í des og svo hlakkar mig svo til að kynna Jotta fyrir snjónum já og jólasveininum. Ég bara nenni ekki að vera í einhverju stressi að þessu glætan spætan og skil ekki fólkið sem gerir það ár eftir ár að versla allt á síðustu stundu. Svo er að styttast í að Jóhann Otti verður stóri frændi þar sem að Inga kærasta stóra bróður míns á von á sér 3.des en það læðist samt á mér grunur að krílið þeirri komi aðeins fyr eins og kom fyrir hjá okkur.
Svo skelltum við skötuhjúin okkur á skrallið í gær þannig að maður er nú ansi lúinn en aftur á móti fór hann Jóhann Otti til ömmu Ólafar í næturpössun sem var líka svona gaman en það gerðist nú samt doldið fyndið hjá þeim, málið var það að ég, mamma og Jóhann Otti höfðum eitt meirihluta af deginum í svona dúlleríi við fórum í kringluna og Kolaportið nema hvað að Jóhann Otti var svo buinn á því að hann sofnaði yfir matarborðinu og svaf bara til 9 í morgun, hann var svo þreyttur að mamma gat háttað hann og hann steinsvaf á meðan. Svo náði hann ekki einu sinni að fá desert hjá ömmu sem hafði keypt spes jarðaberja soya ís fyrir Jotta sinn en hann á hann bara hjá ömmu og afa.
Jæja ég er farinn að tjilla, en ég stóð við mitt Dagbjört
Aurevoir Erla og Jóhann Otti
Risaeðlan Risó
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Dómur: Betri í hlutum en heild
- Stelur frá þeim ríku
- Þorbjörn selur Grindvíkingum MGGA-derhúfur
- Af listum: Mannát og mótmæli
- Þeir sem komast á bragðið fá ekki nóg
- Þetta völdu börnin
- Anna Júlía hlýtur Munduverðlaunin 2025
- Dóttir Völu og Hilmis fædd
- Það andaði ró- og góðsemd af sviðinu
- Dómur: Skipulagt tilfinningalegt ferðalag
Athugasemdir
ég stefni að því að koma í afmælið!
Veit ekki með mömmu því hún er úti í Ástralíu og veit ekki hvenær hún kemur. En ég kem amk 
Kallý, 14.10.2007 kl. 18:07
frábært hlakka til að sjá þig
Erla Júlía Jónsdóttir, 14.10.2007 kl. 18:41
Dugleg Erla
...æðislegar myndir !! hann er orðinn svo stór, ótrúlegt þegar þau eru á þessum aldri hvað þau eru fljót að stækka... algjör dúlla
ohh, vildi að ég kæmist í ammælið... en svona er að búa svona langt í burtu.. ömó !!
gvuðð, mig hlakkar svo til jólanna að það er ekki alveg eðlilegt.. hehe. Þetta verður líka svo yndislegur tími fyrir ykkur, að kynna Jotta litla fyrir jólasveinunum og fleiru
maður ætti eflaust að taka þig til fyrirmyndar með jólagjafirnar, byrja að versla snemma til þess að losna við örtöðina... en æj, ekki alveg strax hehe.. en fljótlega 
Bið að heilsa öllum og hafið það alveg ógó gott elskurnar !! *knús til allra*
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 11:20
Jeij takk. Já það væri gaman að fá þig en þar sem að þú býrð á Egilsstöðum þá fyrirgef ég þér.
Why not og eiga fullt af extra money í des ekki leiðinlegt.
Knús
Erla Júlía Jónsdóttir, 15.10.2007 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.