Jæja já

Þið hafið væntanlega séð myndbandið hér fyrir ofan. OOHH ég á bara sætt barn.

Það má samt segja að sæta barnið mitt sé orðinn algjör klifur köttur, honum tókst um helgina að klifra hjálparlaust upp í sófann og hefur ekki hikað við að gera það aftur, svo vill hann bara klifra upp á ALLT má segja.  Gaurinn er þó ekki farinn að labba en það vantar ekki mikið upp á þetta er spurning um að hann finni smá öryggi og það þarf ekki að gerast nema kannski einu sinni tvisvar og þá fer hann af stað það er eg alveg viss um. Þroskinn hjá honum hefur voða mikið verið þannig að hann hefur bara alls ekki gert hlutina koma þeir allt í einu einn daginn eins og hann sé bara reynslubolti.  Já það er ótrúlegt hvað þessi blessuðu börn geta verið misjöfn, nú eru aftur á móti að bætast við 3 tennur í einu hjá honum og hefur það almennt ekki verið að bögga hann mikið neima eitt kvöldið í síðustu viku þá vildi hann lítið borða og það var bara allt ómögulegt en annars hefur þetta bara verð fínnt.

Nú styttist óðum í afmælið hans sem verður æði  en lilli bróðir minn á afmæli fyrst 7.okt hann verður sem sat 15 ára gamall. Jii þegar maður segir hvað bróðir sinn er gamall þá líður mér eins og ég sé orðin hundgömul ég er það sammt ekki hafa það á hreinuWink. Núna í í október mánuði ætlum við mamma,frænka, amma og ég að gera slátur öss það er nú doldið spennó ég hef aldrei gert það but I will exspect the unexspected. 

Þessi mánuður er alltof busy það er hundasýning, afmæli, slátur já og vinna vinna vinna alltaf nóg af vinnu úff. og það er ekki eins og það sé að minnka því þegar nær dregur að jólum því meira verður um að vera svo í des BÚMM jólahlaðborðSick þá verður allt ccraazzyy. Já en ég skal segja ykkur að ég er byrjuð að versla jólagjafir takk fyrir já ég gerði það nú alltaf að versla þær í okt nóv en það var nú doldið öðrvísi í fyrra sökum þess að maður var ný orðinn foreldri en nú er ég byrjuð hananú.

En ég vil minna ykkur á Hundasýninguna næstu hrelgi sem verður haldin í Reiðhöllini í víðidal þið geið séð beur um þetta á www.hrfi.is 

Ég er farin að tjilla.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lilli klifurmús :) ...æjj hvað hann er duglegur :)

já vá, Árni "litli" að verða 15 ára.. þvílíkt sem tíminn líður.. man þegar við vorum alltaf að passa hann þegar hann var lítill, þá vorum við svo fullorðnar hehe... sættum okkur bara við það, we are getting old ! ..hehe NEI  ;) aldeilis ekki !!

    Bið að heilsa öllum...

*knús á liði* :) :)

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband