12.9.2006 | 15:46
33.vikur
Þá eruð það komnar 33.vikur hvorki meira né minna og spurningin " hlakkar þig ekki til" er farin að hljóma æ oftar og mitt alhliða svar við henni er jú auðvitað hlakka mig til en ég er sammt ekkert að deyja þetta gerist í lok okt og ég vil fá að klára september og síðan ætla ég að segja að mig hlakki ógeðslega til því miður á meðan það er ennþá september þá get ég ekki séð fyrir endanum strax en þegar 1. október kemur þá er óhætt að segja að ég muni byrja að sjá ljósin í endanum á göngonum og spenningurinn á eftir að magnast.
Annars hef ég það bara fínnt heilsuhraust og allur pakkinn ég á eftir að vinna í 2 daga síðan er bara adios vinna ég er farinn í sumarfrí. Síðan gerðist doldið skondið um daginn ég og Davíð láum upp í rúmmi og hann setur eitthvað lag af stað sem hann er með í símanum sínum og leggur hann á bumbuna en ekkert gerist ekki spark ekki neitt okei þannig hann skiptir um lag og setur eitthvað rosa rapplag í gang og setur símann síðan á bumbuna og þá fer allt af stað byrjaði að sparka og snúa sér og bara læti það var allavega svaka stuð hjá litla kút hann fór að rappa í mallanum mínum.
Annars er það að frétta að ástkæra vinkona mín hún Aldís var að flytja til Köben með Baldri ástarpungnum sínum þau ætla að vera þar framm yfir næsta sumar sem er eins gott því ég og Davíð erum búin að panta gistingu hjá þeim næsta ágúst, september þá er draumurinn að skreppa helgarferð bara við skötuhjúin og kíkja að þau.
Hér er fróðleikur um barn á 33.viku
Lungun eru hér nánast fullþroskuð. Ef barnið er fætt nú þegar mun það líklega vera í súrefniskassa um tíma. Barnið er enn veikbyggt þó það hafi náð fullum þroska og er í þeim hlutföllum sem það er við fæðingu. Þyngd þess er 2,1 kg og lengd 42 cm.
Síðan er tími nr 2 á foreldranámskeiðinu í kvöld þá heldur fræðslan um fæðinguna áfram og þessi fræga slökun síðan eftir viku þá fáum við vonandi að sjá fæðingarstofu og ég segji vonandi því ég var að tala við yfirmanninn minn sem átti fyrir tæpu ári síðan og hún sagði mér að allar stofurnar hefðu verði fullar þegar hennar hópur átti að fá að skoða fæðingarstofu þannig allar kellur sem eiga að eiga eftir viku vinsamlegast haldiði fótunum ykkar lokuðum saman takk
Síðan fór ég í hvalasund í gær sem var geggjað ég var reyndar ekki í tíma sem heitir meðgöngusund ég var í tíma sem heitir vatnsleikfimi en helmingurinn voru sammt óléttar konur og hinn gamlar konur. En þetta var æðislega gaman og mikklu meira átak en ég bjóst við það er ekkert bara verið að fljóta á bakinu með bumbuna út í loftið ó nei. Ég mæli alveg með þessu þetta er algert möst fyrir óléttar kvennsur.
Annars verð ég að hryggja ykkur á því að ég gleymdi að taka myndavélina með mér þannig í þetta skipti get ég ekki sett inn neinar myndir en ég reyni að gera það með næsta bloggi.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þrátt fyrir að það hafi ekki allar konurnar verið ólétta þá hef ég ekki séð annan eins öldugang í einni sundlaug hehehe.
Ég gleymdi líka að skrifa að þetta er geggjað fyrir mjaðmirnar maður fann að þetta tók á en og þetta var ekkert alltaf auðvelt en manni leið vel í mjöðmunum eftir á.
Erla Júlía Jónsdóttir, 12.9.2006 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.