Foreldranámskeið og mömmuskoðun: Þ

Jæja þá var fyrsti tíminn á foreldranámskeiðinu í gær sem var bara mjög fínn það var fjallað um fæðinguna sjálfa og það verður líka gert næsta þriðjudag síðan 19. sept þá förum við í heimsókn upp á lansa að skoða fæðingarstofur og hvert maður á að fara það er eins gott að hafa það aá hreinu þegar maður er komin af stað að maður sé ekki villtur hehe.

Síðan í fjórða´tímanum þá verður kynjaskipt spjall.  Ég var nottla lllaannngg yngst þó við höfum nú kannski ekki verið yngsta parið sem slíkt,  en þetta var mjög fræðandi og gaman.  Síðan erum ég og Davíð stundum svo mikklir unglingar hehe málið er það að í lok hvers tíma á að vera svona slökun þá setur hún geisladisk af stað með ölduhljóðum og byrjar að lesa einhvern saminn texta með svona tón einsog hún sé búin að vinna hjá rauða torginu í 30 ár og allir eiga að slaka á enn við þurftum bæði að flissa svo mikið en við náðum stjórn á okkur sem betur ferUllandi

Síðan var mæðraskoðun í hádeiginu í dag og allt leit svona líka vel út við hittum okkar yndislegu ljósu sem er ekkert nema almennilegheitin uppmáluð og hún sagði að litli kútur dafnaði bara vel í mallanum mínu og hann væri í góðu atlæti.  Hún athugaði líka stöðuna á honum og vildi jafnvel meina að hann væri orðin lausskorðaður en það þýðir sammt að hann ´hefur sjens á að verða þrjóskur og snúa sér við eða leggjast á hlið eða gera bara það sem honum hentar en ég vona bara að hann haldi sér og færi sig bara neðar í grindina mína ég nenni ekki veseni hann á að vera góður við mömmu sínaSaklauser það ekki.

Síðan spurði ég hana hvort hún gæti fundíð út sirka stærðina á honum svona í mið okt með því að þreifa á bumbuni og hún sagði að hún gæti reynt það þó það yrði aldrei nákvæmt upp á hár en sagði líka að ef hún ætti að giska núna þá yrði hann svona 14-16 merkur sem er mjög góð stærð og telst í raunini vera meðal stærð.

Annars fer að styttast í þetta og ég sit eins fast á bremsuni og ég get því ef ég fer strax á stað í einhver undir búning what so ever þá er ég ekki viss um að ég geti stoppað mig og ég vil eiga eitthvað eftir í okt  en annars get ég í lok sept byrjað á óskalistanum(fæðingar og gjafa) síðan hafði ég hugsað mér að fá mömmu og Sæu frænku í að hjálpa mér í okt að þvo því ég er nottla svo mikill nýgræðingur og þetta þarf allt að vera gert eftir kúnstarinnar reglum sem ég kann ekki alveg nóu vel.

Annars er það að frétta að ég er að byrja í hvalasundi(meðgöngusundi) næsta mánudag hjá Birnu vinkonu tengdó mér hlakkar geggjað til þá fer ég tvisvar í viku í 1klst í keikó leik heheheUllandi 

Síðan næstu helgi er golffjölskyldumót hjá fjölskylduni hans Davíðs  þar sem þau eru hard core Glottandigolfarar en ég og Hnoðri ætlum að bara að fara í sér voffagolf og leika.

Annars hef ég ekkert meira að segja í bili þannig næsta blogg verður næsta þriðjudag og þá eru 33.vikur og kannski myndir frá helgini you never know.

ErlaSvalur

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Forvitnir lesendur vilja vita hvernig gekk í "Keikó-sundi"
kv.Sæunn

Sæunn (IP-tala skráð) 12.9.2006 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband