5.9.2007 | 20:54
Lasin fjölskylda
Já það eru allir hér á bæ eitthvað slappir eða bara veikir ég er allavega búin að vera veik í tvo daga Davíð líka en svo í kvöld þá ældi jotti kvöldmatnum sínum og fékk niður gang..............já ég veit smekklegt. Ég byrjaði i nýrri vinnu á mánud þannig að ég hef ekki getað verið heima til að reyna að hrista þetta af mér, ég er sem sagt að vinna hjá Hjálpartækjamiðstöð Tryggingarstofnunar ég er að vinna við að skrá umsóknir afgreiða fólk þegar það skilar eða sækir tæki eða koma með það í viðgerð svona sem dæmi, þetta er æði ég sem sagt vinn frá 7:30-15:30 og sæki síðan Jotta bara strax eftir vinnu. Ég er lang yngst þarna en það er ekkert glatað það eru allir mjög almennilegir við mig og ég og fólkið sem vinnur í minni deild náum mjög vel saman þrátt fyrir stóra aldursbrú.
Jæja þetta er svona það helsta ég ætla að fara og ná í tissjú og nýta mér þetta þýðir ekki.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
120 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.8.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 105259
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æ greyjin öll.. ömurlegt að vera lasin

En ein af mínum bestu vinkonum var að vinna í Hjálpartækjamiðstöðinni.
Hún var þar alveg í 2 ár eða eitthvað.
Kallý, 5.9.2007 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.