32. vikur.......

30_vikur.jpg

Jæja sökum anna og leti þá hef ég ekki haft tækifæri á að setja inn færslu fyrir 31.viku þannig ég set bara 32.viku inn snemma en hún byrjar sammt ekki fyr en á þriðjudaginn.  Þið verðið að afsaka þetta þars sem tölvu aðgengi er ekki eins hentugt og var þegar maður bjó hjá tengdó þannig maður þarf að gera sér sérferð í þetta þið skiljið.

 Allavega við höfum það bara ágætt litli prins er orðin doldið plássfrekur og er byrjaður að ýta stundum í rifbeinin á mér og stundum ef ég sit þá getur komið ákveðin þrýstingur á einhverja æð þá er orðið doldið erfitt að anda og hjartað fer að slá óreglulega og ef ég passa mig ekki þá getur liði yfir mig.  Þetta er sammt ekkert óeðlilegt þannig séð því nú er komið á enda sprettinn og hann tekur meira pláss með hverjum cm sem hann stækkar sem þýðir það að líffærin mín fara að búa við ákveðin þrengsli.  Þetta sagði læknirinn við mig og ég á að taka því rólega en aftur á móti ef þetta hedlur áfram þá á kannski að setja mig í hjartalínurit  en það er engin ástæða til að panica svona er bara að vera óléttBrosandi

Ég ætla með þessari færslu að sitja inn nokkrar nýjar myndir og bumbumynd sem var tekinn á 30.viku.

 Annars fórum ég og Davíð á árshátið á núna á laugardaginn hjá Agli Árnasyni sem bauð öllum á Hótel Flúðir í eina nótt og 3 rétta dinner sem var alveg geggjaður annars var ég nú bara rétt yfir mattnum og aðeins lengur síðan fór ég bara að kúra mig og litla prinsinn.

 

Hér er fróðleikur um barn á 32.viku 

 Heilinn heldur áfram hröðum þroska. Húðin breytist talsvert og verður barnið nú feitara en áður og svonefnd barnafita sest á það. Dúnmjúku hárin sem umluku barnið meðan húðin var að þroskast fara að hverfa. Bein halda áfram að styrkjast og vaxa og krefst sá þroski mikils magns af kalsíum. Barnið er hér 1,9 kg að þyngd og 40,5 cm að lengd.

Annars ætla ég að deila með ykkur að ég er búin með teppið ég á bara eftir að taka mynd af því það fylgir því miður ekki þessum mynda skammti.

Síðan er það að frétta að næsta mæðraskoðun er næsta miðvikudag eeennnn FORELDRANÁMSKEIÐIÐ byrjar næsta þriðjudag þá er sem sagt fyrsti tíminn hann verður einu sinni í viku út september alla þriðjudaga í tvo tíma og við erum að pissa á okkur úr spenningi við fáum til dæmis að sjá fæðingar stofu og fleira. Annars stefni ég á það að blogga næsta miðvikudag og læt ykkur alveg vita hvernig fyrsti tíminn var.

 

Þanngað til næst.

ErlaSvalur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja litli frændi farin að hrella mömmu þína strax :)
Um að gera að taka strax sitt páss í heiminum.

Kv.Sæunn og co

Sæunn (IP-tala skráð) 3.9.2006 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband