Sumarið á enda


Jæja þá er sumarið á enda og það er orðið KALT  öss  og þetta gerðist ekkert smá hratt finnst mér allavega einn daginn var hlítt og bara klikkað gott veður, daginn eftir þá vara bara orðið kalt, anar er ég sko klikkaðslega mikil kuldaskræfa þegar frostið er sem mest þá vil ég helst sofa í kraftgalla með lokaðan gluggann og ofninn í botni.  

Við lögðum leið okkar niður bæ á Gay pride daginn og það var bara ágætis stuð og heitari en andskotinn, en það var ekkert smá mikið af geitungum ég get svo svarið fyrir það ég held að það hafi líka verið Gay pride hjá þeim. Skrúðgangan var ágæt en ekkert meira en það maður þurfti nottla að hafa fyrir því að sjá eitthvað þar sem maður er smágerður.

Jóhann Otti  fór á sinn fyrsta fótboltaleik um daginn HK-Keflavík og að sjálfsögðu vann HK 2-1, en það var rosaleg t stuð hjá honum hann var pínu hissa þegar allir stóðu upp og öskruðu þegar HK skoraði mark. Þetta var rosa skemmtileg upplifun fyrir hann og hann fer örugglega miklu oftar á völlinn með pabba sínum þegar hann er orðinn eldri.

Svo var það menningarnóttin ég var reyndar að vinna smá en svo koma Davíð, Jotti og tveir vinir hans Davíðs og við röltum niður við sjó og horfðu á flugeldasýninguna sem var GEGGJUÐ hún var svo miklu flottari en síðasta ár og ég vona að þessi standar falli ekki hjá þeim.  Að vana var bærinn stappaður við vorum nú ekkert lengi við fórum bara  á sýninguna og löbbuðum i gegnum bæinn og heim.  Jóhann Otti fannst flugeldarnir rosa skrítnir og var alveg undrunarsvipur á honum en hann var alls ekki hræddur.

Það er nú ekki frásögufærandi hvað fólk er duglegt að keyra á okkur þessa dagana sko þegar við fórum niður í bæ á Gay pride þá lögðum við á Hótel Holts bílastæðinu ókei ekkert mál nema hvað þegar við komum til baka úr bænum þá var númera platan(vorum á Honduni) ekki á þá hafði einhver bakkað á okkur en sem betur fer voru þetta einu skemmdirnar en það sást ekkert á bílnum sjálfum leiðinlegt samt.  Í dag þá var þá var svínað fyrir Davíð hann var sem sagt á hægri akrein og það var jeppi sem var á vinstri og inni honum voru hjón og konunni langaði allt í einu í ís og þá beygir hann bara til hægri til að komast á frárein til þess að komast í sjoppu sem var þarna við hliðina en með þeim afleiðingum að hann keyrir á frambrettið og stuðarann sem er doldið beyglað en ekki það mikið að það sé ekki hægt að keyra bílinn, en ég vil bara koma því á framfæri hér HÆTTIÐ AÐ KEYRA Á OKKUR.

Jóhann Otti er síðan að fara í 10 mánaða skoðun á þriðjudaginn og það verður gaman að sjá hvernig hann kemur út úr henni og þess má til gamans geta að hann var eimmitt 10 mánaða  á menningarnótt. Ég er síðan á fullu að leita mér að vinnu og er að fara í tvö atvinnuviðtöl í vikunni þannig að wish me luck.

Jæja nú er ég farinn að tjilla. 

ErlaInLove og Jóhann Otti Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband