Versló

Já þá er verslunarmannhelgin liðinn og hversdagslífið tekur við, það var alveg gasalega gaman hjá okkur.

Þetta byrjaði sem sagt þannig að ég fór að vinna á laugd til 12:30 og síðan kom ég heim og þá var litli pungur sofandi ég og Davíð fórum í það að klára að pakka þó að það hefði verið gott sem búið og koma öllu fyrir í bílinn, síðan va haldið af stað og fyrsta stoppið var í mosó vegna hungurs siðan brunuðum við af stað og næsta stopp var á Búðardal.  Áður en við vissum af þá vorum við kominn til Kvígindisfjarðar, planið var að grilla þetta laugardagskvöld en það var svo leiðinlegt veðrið að við frestuðum því um einn dag, í staðinn fengum við okkur gúllas og hjemmlageð kartöflumús a la Sæa frænka og Jotti át ekkert smá vel af henni, áður en maður vissi af var kominn háttatími fyrir jotta og hann var svæfður og gekk það allt eins og í sögu.

Þegar það var búið að svæfa var tekið í spil með Edda, Sæu, Dagbjörtu, Sverri og Davíð við vorum eitthvað fram á nótt að spila og það var bara geggjað stuð strákarnir urðu reyndar eftir og kláruðu spilið og sötruðu wisky þar sem að ég og Dagbjört vorum orðnar svo þreyttar og fórum bara að sofa.

Á sunnudeginum vöknuðum við og fengum okkur morgunmat og það birti til vindurinn var þó kaldur á köflum en það var allt í lagi við klæddum okkur bara vel. Jotti vígði nýja polla gallann sinn og stígvélin sem ólöf amma gaf honum og fékk að stinga löppunum í sjóinn i fjöruna með aðstoð pabba síns, við enduðum daginn á að grilla alveg dýrindis máltíð og slökuðum síðan bara á um kvöldið.

Mánudaginn þá vöknuðum við snemma  borðuðum morgunmat og brunuðum í bæinn við ákváðum að fara snemma því við vorum  ekki í stuði að vera koma seinnt heim, en þar með var verslunarmannahelginni lokið og hún var frábær.

Annars er allt gott að frétta  þessi litla elska er farin að reyna að stjórna heimilinu en hann kemst að því fljótt að mamma og pabbi ráða, hann stendur upp sjálfur alveg hægri vinstri og ég vil meina að hann sé farinn að segja mamma.  Hann er ann bara með fjórar tennur en næstu fara að detta niður, það er komið allskonar nýir hlutir í mataræðið hans eins og t.d. nýja uppáhaldið er sólberja svali kindakæfu bitar, hann er líka orðinn svo rosa duglegur að týna upp í sig sjálfur  sem er bara góð þróun.

Jæja ég þarf að fara skella inn myndum sem fyrst endilega fylgist með.

Erla og jotti 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband