18.7.2007 | 22:32
Jotti er 9 mánaða ÍDAG
Já elsku landar nær og fjær það er sko búið að vera nó að gera hjá okkur núna undanfarið og ég ætla að sjá hvort ég get ekki sagt ykkur frá því og vona að ég gleymi engu
Síðasta sunnudag hittum við skyldfólk Davíðs(mömmu hans megin) í Heiðmörkinni og það var bara geggjað veður, það var ákveðið að eyna koma hópnum saman eina dagsstund því við hittumst svoooo sjaldan. Það var geggjað veður og bara stemmning með frábæru fólki. Síðan þegar það var búið þá fór lagði Davíð og Anton vinur hans í hringferð um landið þannig að ég og Jotti erum bara ein í kotinu. Ég er svo heppinn að eiga pabba sem er með svo frjálsan vinnutíma að hann hefur verið að koma eldsnemma á morgnana og passa svo ég get farið í vinnuna því dagmamman er í fríi. Afi og Jotti eiða hálfum deginum saman og gengur það bara eins og i sögu og var ekki við öðru að búast. Þeir hafa tvisvar farið út í tæp tveggja tíma göngu og Bjössi hefur fengið að fljóta með.
Jotti er komin með þrjár tennur tvær framtennur í neðri góm og eina framtönn í efri góm, svo er hann farin að standa upp alveg sjálfur en jafnvægið hjá honum er stundum svona la la eins og maður segir en hann er svell kaldur í að hreyfa fætur og sleppa annari hend og gera allskonar kúnstir þegar hann stendur upp. Hann er farin að vera svo duglegur að borða allskonar mat og leyfi ég honum hiklaust að borða það sem við borðum nema það sem er mjólk í, hann smakkaði t.d. pizzu um daginn reyndar ekki með neinu á nema sósu, hann hefur líka smakkað skrúfu pasta og át það með bestu lyst. Það að hann geti ekki drukkið venjulega mjólk er bara alls ekki slæmt því maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í soya vörunum ég hef t.d. verið að kaupa soya með jarðaberja, banana og súkkulaði bragði ég hef verið að kaupa soya ís og soya jógúrt og desert þannig að það er komið alveg gott úrval af soya vörum.
Svo verður Jóhann Otti stóri frændi í byrjun desember því að bróðir minn og kærastan hans Inga eiga von á barni sem eru bara HAMINGJA.
Jæja ég er orðin svo þreytt að ég man ekki helminginn sem ég ætlaði að skrifa, ég skrifa þá bara meira seinna.
Góða nótt sofið rótt í alla!!! nótt.
Guð geymi ykkur.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
til hamingju með drenginn í gær.
Það verður svo stutt í það að þú þurfir að hlaupa á eftir honum og passa hann, ég kannast sko við það
kveðja Lea og Ingólfur Þór
Lea og Ingólfur Þór (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 14:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.