14.8.2006 | 16:13
29.vikur
Já það eru 29.vikur á morgun þriðjudaginn 15.ágúst ég ætla sammt að blogga um það núna þar sem ég veit að ég hef ekki tækifæri á því á morgun.
Það gengur allt rosalega vel ég er sammt búin að vera pínu þreytt undan farið en allt innan eðlilegra marka, nú er prinsinn og bumban orðin það stór að það er hægt að finna fyrir litla prinsinum þegar maður potar í bumbuna. Davíð fékk að finna um daginn og honum fannst það alveg æðislegt. Síðan er ég búin að fá staðfest hvenær ég hætti að vinna síðasti vinnudagur er semsagt 15. sept en þá byrja ég eiginlega í sumarfríi sem nær framm í miðjan okt og þá er hvort sem er orðið fínnt að hætta þannig það má segja að 15.sept sé ég bara hætt að vinna.
Ég hef ekkert planað hvað ég ætli að gera í sumarfíinu sem er bara allt í lagi ég ætla að láta það ráðast, en ég hugsa sammt að stefnan verði sett á að hugsa vel um sjálfan sig fara oftar í sund, rækta fjólskyldu og vinabönd og tala nú ekki um að rækta ÁSTINA síðan þegar líða tekur á október þá þarf maður að byrja undirbúa komu litla Dave þvo og strauja,. setja upp rúmm versla krem og allt þetta lilta dót sem barnið þarf, skrifa óskalista, skrifa óskalista fyrir fæðingu, klára teppið sem ég er nú langt komin með.
Að hugsa sér eftir viku þá er lámark 8.vikur í að sonur okkar fæðist mér finnst það bara ekkert langur tími ég væri svo sum alveg til í að það væri styttra í þetta en ég veit að biðin borgar sig.
Hér er fróðleikur um barn á 29.viku
Barnið fer nú að heyra betur og betur. Barnið getur greint raddir og hljóð og sagt er að hjarta barnsins slái hraðar en ella þegar það heyrir rödd föður síns eða móður. Einnig er sagt að tónlist sem barnið heyri í móðurkvið komi það til með að muna eftir fæðingu og á það að sjást best á því að barnið stoppar við til að hlusta á tónlist sem það heyrði í móðurkvið. Barnið er að þyngjast um 200 grömm á viku en vex aðeins um nokkra millimetra í stærð. Núverandi stærð þess er 36 cm á lengd og 1,3 kg á þyngd.
Annars er ég að fara í hvalaskoðun á miðvikudaginn með litlu frænku minni við ætlum að reyna aftur þar sem ferðini var aflýst sýðast vegna verðurs þá mun ég reyna að taka eitthvað af myndum sem ég set þá næstu helgi hérna inn áþá kannski splæsi ég á eina bumbumynd eða svo
Þanngað til næst
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:15 | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.