9.8.2006 | 15:58
28.vikur
Jæja þá er ég kominn 28.vikur og allt svona líka fínnt ég var í mæðraskoðun í dag og allt leit svona líka vel út, hún vill reyndar að ég breyti vinnutímanum ég vinn allt of mikið í senn hún vill að ég vinni færri tíma á dag sem er allt í lagi ég á eftir að tala við yfirmanninn minn um það. Svo vill hún fá þvag sýni því að ég er búin að vera með smá ónot neðst þar sem legið er svona eins og þrýsting hún ætlar bara að útiloka sýkingu vonandi er þetta ekkert. Maður er nú sammt farin að finna fyrir að maður er sko ekki einsamall því ég er farinn að finna pínu til í bakinu en það er svo sum lítið hægt að gera í því nema fara vel með sig.
Síðan spurði ég ljósuna hvort hún gæti fundið hvernig hann liggur í bumbuni og hún athugaði það þá snýr hausinn niður og hann er með bakið til vinstri og hún lét mig þreifa líka þannig ég fann fyrir hausnum sem var ÆÐI en þetta getur nú sammt verið fljót að breytast því þessi kríli geta farið á flegi ferð ef þau ætla sér það og þá breytist hvernig þau liggja.
Síðan er fer bráðum að styttast í foreldranámskeiði ohh hvað mig hlakkar til. Mig minnir að það byrji 5 eða 6 sept.
Hér er fróleikur um barn á 28.viku.
Lungun nálgast nú fullan þroska. Hreyfing öndunarfæra eru nú í takt og spila vel saman. Ef barnið er karlkyns færast eistu niður í pung; ) Barnið er nú 35 cm langt og 1,15 kg.
Þar hafið þið það.
Ég læt fylgja 3d mynd með af barni á 28.viku( ekki okkar ; )
Þanngað til um helgina.....
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.