6.8.2006 | 10:18
27.vikur
Jæja sæl öll sömul þið verðið bara að afsaka seinganginn í mér það er búið að vera brjálað að gera þessa viku og ég hef ekki haft nein tíma til að blogga.
Annars er allt gott að frétta af mér ég hef reyndar verið orkilítil en það fylgir þessu bara. OHHH síðan er litli prinsinn farinn að taka meira pláss og farinn að þrýsta á pissublöðruna mína þannig mér er alltaf mál, hann er að verða plássfrekurAnnars er hann bara í fullu fjöri. Síðan er ég að fara í mæðraskoðun næsta miðvikudag, þá fæ ég að hlusta á hjartað AFTUR jeij en því miður kemmst ekki Davíð með mér því það er svo fáliðað í vinnuni hans að hann kemmst ekki frá en það er nú enginn heimsendir hann kemur bara næst.
Ég gerði ekki rassgat í bala um verslunarmannahelgina eða þannig ég fór allavega ekkert út úr bænum ég kíkti í eitt partý á laugardeginum fór síðan bara heim að sofa og síðan vinna, mér dauðlangaði sammt að fara til Galtalækjar því amma og Kristján eru með bústað þar þannig við hefðum ekki þurft að gista í tjaldi það er líka svo kósí þarna.
Síðan varð pabbi 50ára 3. Ágúst og við fórum hópur út að borða á Tvo Fiska og fengum þar alveg geggjaðan mat, við byrjuðum á hörpuskel í forrétt síðan fengum við fiska þrennu á aðalrétt lax, þorsk og lúðu, síðan í desert fengum við skyrbúðing. Þetta var algjört nammi eftir matinn var pabbi boðið surprise upp á hótelið sem ég er að vinna í gistingu. Þar gistu mamma og pabbi eina nótt og fengu morgunmat í rúmmið og alles.
Hér er fróðleikur um barn á 27.viku
Íþessari viku mun himnan sem hulið hefur augu barnsins fram til þessa opnast lítið og mynda þannig augnalok. Byrjar nú sá tími þar sem barnið getur greint hluti með sjón sinni. Á þessum tíma eru augu barnsins í flestum tilvikum blá og taka á sig endanlegan lit nokkru eftir fæðingu. Augnlokin og augabrúnir eru einnig mótuð. Þyngd barnsins er nú 1 kg og hæð þess 34 cm.
síðan eru það bara 28.vikur næsta þrðjudag en ég blogga ekki fyr en á miðvikudag.
Þangað til næst.
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.