23.7.2006 | 11:04
Flutt inn!!!
Jæja þá erum við flutt inn og meira að segja búin að koma okkur fyrir það var bara tekið á því, þetta gerðist allavega hratt allt þetta ferli og þreyta var sko til staðar en ég er bara fegin ég nenni ekki að vera að taka mér einhverja viku í þetta.
Annars er allt gott að frétta ég tók að mér karlmanshlutverkið síðastliðin föstudag og sló garðinn sem var ekki leiðinlegt Árni Snær og mamma gerðu það líka því þetta er nefninlega ekki eins auðvelt og maður heldur, síðan voru reittir arfar, plantað blackberry tréi og tveimur myntuplöntum og vitir menn garðurinn er orðin glæsilegur tala nú ekki um að það er svo oft lítil kisa sem fær að leika í garðinum hjá okkur.
Síðan er það bara grand næsta þriðjudag því staffiunu í lobbíinu er boðið út að borða á nýja veitingastðainn Silfur á Hótel Borg og ég geri nú ekki ráð fyrir örðru en að það verði geggjað gott.
Síðan fer að styttast í þetta pabbi að verða 26.........(50) 3.Ágúst og planið er að fara út að borða á Tvo Fiska og snæða dýrindis kvöldmat og gefa honum fullt af pökkum JEIJ, já tíminn líður hratt hraðar en maður veit af.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra ekki gleyma næsta þriðjudag 26.vikur.
Annars vil ég þakka öllum sem veittu okkur hjálparhönd við að koma okkur fyrir í nýju íbúðina okkar ég get fullyrt það að þetta hefði ALDREI geta gengið svona hratt og vel fyrir sig nema með þessari aðstoð sem við fengum og við erum ykkur MJÖG ÞAKKLÁT
Ég set líka inn myndir á næsta þriðjudag af íbúðinni.
Adios Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með íbúðina :)
orðin ekkert smá fullorðin, búin að kaupa íbúð, barn á leiðinni, ég bíð bara eftir boðskorti í brúðkaupið ;)
Kally (IP-tala skráð) 24.7.2006 kl. 16:56
Takk fyrir það:) Glætan ekki strax þetta er nóu stór pakki í bili hehe.
Erla Júlía Jónsdóttir, 25.7.2006 kl. 15:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.