19.7.2006 | 18:06
25.vikur
Jæja þá eru það komnar 25.vikur og litli kútur farinn að sprikla eins og línudansari, buffar magan á mér alveg hægri vinsrti.
Mér er annars búið að líða vel. Nú er allt í hers höndum við fengum íbúðina síðasta laugardag og í kvöld verður lögð síðasta hönd við að ditta upp á hana og þrífa rykið og drulluna sem mamma, Sæunn og amma ætla að gera fyrir mig þar sem ég er að vinna til 22:30 og kannski fullseint fyrir mig að vera að byrja þá en þær eru svo yndislegar við mig og ætla gera þetta fyrir mig og bumbubúan.
Síðan er stefnan sett á að flytja á morgun ohh þetta verður ÆÐI, ég ætla að vera með myndavélina á lofti þar sem ég má ekki lyfta neinu hehehe þannig ég verð þarna að skipa fyrir múha. Ég ætla líka taka myndir af garðinum sem er geggjaðslega flottur það verður sko legið í sólbaði þarna þegar gula kvikindið lætur sjá sig almenniglega.
Annars var ég í mæðraskoðun í morgun og allt leit mjög vel út ég hittti líka nýja ljósu sem er alveg frábær verst að ég fæ bara að hafa hana framm að hausti sem er BÖMMER því hún er bara þarna á sumrinn síðan fer hún yfir á spítalan í haust þá fæ ég nýja en það verður bara að hafa það. Hjartað slær alltaf jafn fallega í lilta guttanum okkar og hann lætur bara fara vel um sig í mallakúttnum mínum.
Hér er smá fróðleikur um barn á 25. Viku
Á þessum stigspunkti getur barnið sett þumalinn upp í munn sinn. Barnið getur á þessum tíma í fyrsta sinn grátið sem er mikilvægur eiginleiki. Bein byrja að harðna. Húðin þroskast áfram og styrkist og getur nú þolað betur vökva í leginu og viðhaldið stöðugum líkamshita barnsins. Hér hægist talsvert á vexti og verður hann stöðugur það sem eftir er meðgöngunnar. Barnið er nú 32 cm langt og 750 grömm.
Þar hafið þið það annars er það að frétta að við erum búin að fá baðvog í innflutningsgjög alveg geðveikt flotta digital baðvog.
ÉG ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég er í vinnuni þið verðið að afsaka seinkun á blogginu það hefði átta að koma í gær en það tókst ekki ég blogga næsta þriðjudag og set þá inn eitthvað af myndum af flutningum og íbúðini.
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.