23.5.2007 | 20:38
Morðóður gullfiskur (nýjar myndir líka)
Það eru komnar nýjar myndir í JóhannOtti 6-8manaða möppuna
Jíbbbííí cola ég vil byrja á því að segja ykkur að skólinn er búinn og ég fékk 7 í prófinu WWWÍÍ hefði alveg vilja fá hærra en þetta var nokkuð gott miðað við aðstæður(löng saga).
Ég komst að því um daginn að ég á morðóðan gullfisk hann Gus sko fyrst keyptum við 3 fiska Rusla, Davíð og Gus síðan dó rusli og Davíð okei ekkert mál við sögðum fyrst meira í djóki sammt að gus hafði drepið þá síðan um daginn svona sirka 1og1/2 ári eftir að hinir tveir dóu þá ákvað ég að fara og splæsa í einn vin handa Gus og ég fór í Fiskó og fór að ræða við afgreiðslu manninn um Gus og var að segja honum forsöguna og líka það að hvað hann er ótrúlega lífsseigur og afgreiðslumaðurinn studdi þá grínkenningu hjá okkur að Gus gæti verið að drepa hina fiskana og ég hugsaði okei látum bara reyna á það og vitit menn þrem dögum efftir að ég keypti nýja gullfiskinn sem fékk nafnið Hemen(borið fram hímen) þá var hann látinn blessuð sé minnig hans. Hann fékk virðulega útför sem fór framm í kyrrþey inn á baði og útfararstjóri var Davíð. Þar hafið þið það ég á morðóðan gullfisk.
Annars er allt að besta að frétta ég er bara alltaf að vinna og geri allaveg þessa dagana ekkert meira en það allavega eins og er. Hann Jóhann Otti rifnar lyggur við úr fötunum sínum hann stækkar svo hratt exemið er eiginlega bara farið eftir að við hættum að gefa honum mjólkurvörur sem er frábært ég ætla að hafa hann á rísmjólk þanngað til svona 9-10mánaða og þa ætla ég að fara að gera tilraun til að gefa honum nýmjólk því sammkvæmt lækninum þá þroskast þetta af þeim, ég hef svo sum aldrei látið reyna á nýmjólkina en ætla ekki að byrja á því núna. Hann situr orðið alveg einn en er sammt voða lega duglegur að henda sér á magann og ég sé það alveg að hann gerir það meðvitað en hann þarf bara að læra, hann er líka farinn að hálfpartinn að skríða meira sammt svona hermannaskrið og stundum þá fer hann á fjórar fætur en fer ekkert áfram þannig en þetta er allt að þróast í rétta átt. Tennuranar virðast þó ennþá vera í bakkgír og ég eiginlega svittna við tilhugsunina að hann gæti tekið alveg slatta af tönnum á litlum sem engum tíma og ég veit ekkert hvernig hann á eftir að vera. Hann er orðinn svo duglegur að borða hann er kominn í efsta stigið í öllum barnamat sem er með svona "kögglum" í og át hjá mér um dagin heila brauðsneið með smjöri ohhh það var svo gott.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ég reyni að blogga aftur eins fljótt og ´ég get.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:39 | Facebook
Færsluflokkar
197 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæjj... vildi bara senda ykkur smá kveðju og *RISAKNÚS* með ;)
hafið það gott.... sætar myndir af krúttinu :)
kv. Dagbjört frænka ;*
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.