13.5.2007 | 22:40
Ein þreytt
Hæ dúllurnar mínar já það er allt gott að frétta af okkur ég er ný búin í 4 daga vinnutörn sem hefði átt að vera 3daga en ég þurfti að redda hinum vaktstjóranum og skipta.
En vegna mikillrar vinnu þá var ekki mikið gert um helgina annað en í gærkvöldi þá bauð mamma okkur í grill partý,þar fengum við dýrindis svínalundir og nammi hvað það var gott kjötið bráðnaði upp í manni. Þetta var geggjað kvöld allir komnir saman sem manni þykir vænt um og mamma með sýna yndisleg gestrisni ég hugsa að það gerist ekki betra Svo að sjálfsögðu fylgdist maður aðeins með Júró og þetta var mjög áhugaverð keppni, lagið sem vann var allt í lagi en bara allt í lagi það hreif mig ekki það mikið að ég er að syngja það í þessum töluðum, en mér fannst flott að kona með hold og FULLKLÆDD hafi unnið. Lagið sem ég hefði viljað sjá vinna var frá úkraínu mér fannst það öðrvísi lagið gott og það var skemmtilegur húmor í því. Súrasta
lagið var pottþétt frá Bretlandi mér fannst lagið leiðinlegt og sá sem hefur samið sviðsatriðið hefur án efa verið á einhverju.
Kosningar búnar sem er fínnt þetta er leiðinlegt tímabil en þó nauðsynlegt, ég hef aldrei spáð mikið í pólitík fyr en þessar kosningar þá byjaði ég aðeins að opna eyrun og reyna að mynda mér skoðanir. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að opna eyrun var að núna er maður kominn með barn og maður vill fólk á þing sem berst fyrir réttindi barna og foreldra eins og t.d. að lengja fæðingarorlofið. Ég vil sammt hvetja alla til að byrja að spá í þessu þó að þið eigið ekki börn ekki taka mig allavega til fyrirmyndar. Nú bý ég í Kópavogi sem er víst ekki gott ef maður á barn eða börn, það er umtalað að það sé verst að vera í kópavogi þegar það kemur að börnonum. Afhverju??? Par sem er skráð í sambúð á EKKI rétt á niðurgreiðslu fyrir dagmömmu fyr en barnið er orðið 9 mánaða og þá er væntanlega að vera gera ráð fyrir því að það sé tekið fullt fæðingarorlof. Málið er bara það að það geta ekki allir tekið fullt fæðingarorlof það er bara ekki alltaf hægt fjárhagslega. Það að kópavogsbær gerir þetta þýðir það að foreldrar skráðir í sambúð og hafa hugsað sér að sitja barnið sitt til dagmömmu 6 mánaða þarf að borga allt að 70000kr á mánuði það er bara alls ekki í lagi.
Jæja nó um pólitík, hann Jóhann Otti er allur að vaxa og dafna og verður 7 mánaða næsta föstudag, hann er orðinn svo duglegur að sitja en ekki alveg komið en við höldum bara áfram að æfa. Rísmjólkurtilraunin virðist vera að virka hann fær ekki lengur svona exem roða og útbrot í vangana en hann klórara sér sammt eitthvað en þó ekki eins mikið og hann gerði þannig að ég er voða sátt ég meira að segja búin að finna ódýra en góða mjólk sem er meira að segja kalk bætt eins og stoðmjólkin eins og börn þurfa oft. Síðan svona spari þá fær hann rísmjólk með möndlubragði sem er voða gott.
Jæja nenni ekki meira í bili ég blogga aftur í vikuni og skelli inn nýjum myndum endilega fylgist með og svaraði skoðunarkönnununi.
Takk og bless
Erla Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
197 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Bjart með köflum og hlýjast á Vesturlandi
- Reyndi að stinga af á stolinni bifreið
- Vilja ekki álykta um upphaf covid-bylgju
- Skattar á ferðaþjónustu boðaðir
- Örorkulífeyrir bitni ekki á ellilífeyrinum
- Göngumanns leitað við Esju
- Undarlegt að stjórnvöld höggvi í fjölmiðlana
- Hann er bara besta dæmið um þetta
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.