5.7.2006 | 21:13
Mæðraskoðun
Jæja þá er ég búin í aukaskoðunninni og það kom svo sem ekkert neikvætt út.
Það var skoðað það sem er vanalega gert blóðþrýsting, hlustað á hjartað og sent inn miðbunupiss í ræktun DON'T ASK einhver rútína. Þær vilja ólmar senda mig í hvalasund(meðgöngusund: ) þannig að það er næst á dagskrá og ég fékk eitthvað blað með upplýsingum um sund í sundlaug hrafnistu í Hafnfj. Jú okei 9000kr fyrir 4vikur 2 í viku. NEI ég talaði nottla við tengdó og besta vinkona hennar byrjar að kenna msund í lok ágúst og tengdó hefur stundum kennt þetta sjálf og þær eru svo elskulegar og ætla að fara með mér í sund sem fyrst og kenna mér æfingarprógram sem ég get svo bara gert sjálf þannig ég þarf ekki að borga 9000kr ég fæ svona prævat lesson. Síðan er ég komin efst á lista í lok ágúst fyrir hvalasund.
Síðan var tekin blóðprufa og það verður kannað hvort storknunarefnin í blóðinu séu ekki örugglega í lagi og ath járnmagn nú séu þau ekki í lagi verður bara fylgst með því. Niðurstöðu fæ ég kannski í vikuni eða í byrjun næstu sé eitthvað óeðlilegt hringja þær.
Síðan kíkti ég í Ólavíu og Ólíver og sá draumarúmmið og í leiðinni sá þessa geggjuðu skó sem ég stóð ekki á mér og kipti svona með ásamt smá öðru sem ég læt fylgja mynd af.
Annars er ég hress ég tók það "merkilega" skref og skráði okkur í sambúð í dag líka svo hann yrði Davíðsson en ekki Erluson. Ég var spurð fyrir nokkrum mánuðum síðan hvort við værum ekki skráð í sambúð ég sagði nei ég ætla ekki að vera skráð í sambúð fyrir 20 það er alveg nó að vera byrjuð að búa
Þanngað til næst
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við mæðgur kvittum fyrir innlitið.
Kv.Sæunn og Ólöf Soffía
Sæunn (IP-tala skráð) 6.7.2006 kl. 08:21
JEIJ takk
Erla+1 (IP-tala skráð) 6.7.2006 kl. 18:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.