23.vikur.

stollinn_fra_saeu.jpg

Ég hef ákveðið að blogga 23.vikuna snemma út af mörgum ástæðum.

 Þá er ég komin 23.vikur eða næstum því 6mánuði líður hratt sem er allt í lagi mér líður þokkalega vel hef reyndar verið mjög þreytt undanfarið og mjaðmagrindin stundum alveg að fara með mig en að öðruleit bara góð.

Annars er ég að fara í aukaskoðun næsta miðvikudag því ég var að tala við vaktljósmóðir í dag um að skipta um ljósmóður og minntist á örfá atriði við hana sem hún vill láta ath.

Ég hef nefninlega fengið blóðnasir stundum og síðast þegar ég fékk þær þá blæddi eins og það væri borgað fyrir það þetta var rosalega mikið þannig hún vill láta athuga storknun í blóði hjá mér og þá í leiðini verður athugað járnmagn í blóðinum því það gæti veri að mig vanti bara járn og þá fari þreytan.   Annars er ég nú ekki að fara að skipta um ljósmóður vegna bullandi óánægju heldur vegna þess að mér fannst bara sú sem ég hitti fyrst vera bara svo hress og jákvæð en sú sem ég á að vera með er fín en það er doldið óþægilegt þegar maður er í skoðun og það kemur svona óþægileg þögn og hún var eitthvað svo döll.  Þetta eru manneskjur sem hugsanlega taka á móti barninu mínu þannig ég geri mikklar kröfur þó þær séu ekki óraunhæfar.  Annars sú sem mig langaði að hafa er bara í afleysingum en þá finn ég bara einhverja aðra.

 

Hér er fróðleikur um barn á 23.viku 

 Litlar línur sjást nú á fingrum og lófum sem síðar verða að fingraförum. Taugafrumur hafa nú náð þroska og byrja bráðum að tengjast saman og mynda heilstætt taugakerfi. Vísar fullorðinstanna, sem er alla tíð í barninu fyrir ofan barnatennur, eru nú á sínum stað og vísar barnatanna taka að þroskast. Barnið er nú 28 cm langt og 550 grömm að þyngd.

 

Annars vorum við að fá GEGGJAÐA gjöf frá Sæu frænku sem ég læt fylgja mynd af og hún útskyrir sig sjálf við erum allavega nokkuð solid með þetta TAKK SÆAKossHann er geggjaður.

 

Þanngað til næst elskurnar 

 

ErlaSvalur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband