27.6.2006 | 22:55
22.vikur eða 5 og 1/2 mánuður
Þá er komið að 22.viku mér líður feiki vel dagarnir þjóta frá manni nóg að gera í vinnuni sem heldur manni uppteknum.
Næsta helgi, ferðamanna helgi og Davíð og félagar ætla upp í Þakgil sem er GEGGJAÐUR staður við fórum þangað þar síðasta sumar í tvær nætur að það var æði. Staðurinn er semsagt rétt hjá Vík í Mýrdal eða svona 30mín akstur. Ég er auðvitað að vinna þessa helgi þannig ég kemst ekki með í staðinn grenja ég mig í svefn á kvöldin þanngað til þessi helgi er búin......grín
Annars er ekki mikið að frétta við bíðum enn eftir íbúðinni þó við séum flutt inn í huganum, ég talaði við eigandan nýlega og hann upplýsti mig um að þau væru búin að kaupa íbúð sem stæði tóm og þannig séð tilbúin fyrir þau en þau ætla eitthvað að vinna í henni mála og spasla en væru að stefna að því að reyna hafa Vallartröðina tilbúna 18.júlí en svo er bara að bíða og sjá hvort þeim takist það því þau hafa alveg til 12.ágúst þannig í raunini þurfa þau ekkert að stressa sig. Markmiðið er samt 18.júlí.
Ég vil hvetja ykkur í að smella á myndaalbúmin því ég er búin að dæla inn myndum sem sjást ekkert á forsíðunni á heimasíðunni.
Hér er fróðleikur um barn á 22.viku
Barnið byrjar í þessari viku að framleiða hvít blóðkorn sem síðar hjálpa því að berjast við sjúkdóma, sýkingar og aðrar óværur. Barnið bregst við áreiti úr umhverfinu á borð við rödd fólks og strokum á maga og öðrum slíku. Húð barnsins fer að þykkjast talsvert en fitufrumur eru ekki enn komnar í húðina svo hún er enn hálfgegnsæ á að líta. Augnabrúnir og augnhár hafa einnig byrjað að vaxa. Barnið er núna um 26 cm langt og 500 grömm.
Annars er gaman að segja frá því að frænka mín sem býr á Akureyri hún Dagbjört var í heimsókn í bænum fyrir nokkrum dögum síðan og við fórum á kaffihús saman og updateuðum slúðrið en það var gaman að hitta hana þar sem það gerist ekki oft ég get bara ekki beðið eftir að komast með henni aftur á skrall á Akureyri það var svo gaman síðast
Ef þið eruð að sitja inn athugasemnd og það kemur eins og þið séuð ekki skráðir notendur og það er óskað eftir nafni og e-mail, skrifið það þá bara inn þá getið þið skrifað inn athugasemd.
Ég læt fylgja með mynd af sundskíluni sem litli prins á að fá og hún er við hliðina á skíluni hjá pabba sínum svona til að sína stærðarmuninn og bara svo þið vitið það jú það verður farið í ungbarnasund og sundkennarinn sjálfur veit af okkur og búin að fá að sjá töffaraskíluna sjálfa hún er nefninlega besta vinkona tengdó
Sæl að sinni Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bara að kvitta fyrir innlitið
Kv.Sæunn
Sæunn Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.6.2006 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.