já mér leiðist  þannig að ég ákvað að skella mér í tölvuna og blogga aðeins. LoL

Við familían fórum saman á handboltaleik áðan og það var rífandi stuð, það voru trommur hjá sitthvoru stuðningliðinu  og hann Jotti var pínu hræddur fyrst og það kom stundum svona sviður eins og hann væri að fara að gráta en eftir smá stund þá var þetta bara geggjað fjör hjá litla kallinu, við létum hann stundum tromma í takt við hina og mamma sagði áfram HK fyrir Jotta og þá var sko brosaðGrin

Ég fór út í stuttan göngutúr í dag þar sem að ég var líka að passa hann Hnoðra(hund tengdó) of ég er EKKI að grínast það réðst á mig geitungur djöfull bráGasp mér ég var líka eins og hálviti ég fék svona spassa kast þarna á gangstéttini(var fyrir framan Kópavogsskóla) og það vildi svo skemmtilega til að það var ágætis umferð þarna gaman gaman.  Ég sagði Davíð frá þessu og hann vildi meina að þetta hafi ekki verið geitungur hann sagði bara  nei þeir eru ekki komnir en ef ég man rétt þá kom það nú bara í fréttum:  fyrsti geitungurinn mættur:  eða eitthvað álíka burt séð frá því þá var þetta einhver ógeðsleg fluga. 

Já ég er ógeðslega Undecidedhrædd við geitunga, randaflugur og köngulær sem koma inn til mans(tvisvar lent í því) og þið meigið alveg kalla mig kveif ef þið viljið mér er sko alveg sama ég er skíthrædd við þessi kvikindi tala nú ekki um eftir að það settist geitungur í hárið á mér síðasta sumar,  þá var ég inn í sjoppu að bíða eftir afgreiðslu og ég strauk svona í gegnum hárið á mér og fann fyrir einhverju sem var geitugur sem ég er ekki alveg klár á því hvað hann gerði því ég fékk sting í puttann en það var ekkert far þannig hann hefur kannski náð að draga oddinn út ég veit ekki en þá þurfti ég virkilega að hafa mig ALLA við til að bara fá ekki flogakast mér brá svo.  Þessi atburður var ekki að bæta úr minni hræslu við þessi kvikindi og gvuð minn alla malla ég veit ekki hvað ég geri í sumar ef þessum flugudruslum dettur í hug að setjast á Jóhann Otta þar sem að við erum með plan á að vera dugleg að nota garðinn okkar og gera eitthvað sumarlegt í sumar.

Aðlögunin hjá dagmömmuni gengur bara rosaleg vel það var svona Frown"fyrsta grátið" hjá henni í dag sem var ekkert drama svo sum hann var bara þreyttur og þurfti að komast í ró sem hún kom honum síðan í en þetta er kannski líka að vissu leiti ekki bara aðlögun fyrir hann hræddur líka mig og hana.   Ég held að þessi drengur verði doldið þrjóskur á að fara læra að sitja málið er nefninlega það að hann er rosalega sterkur  og hefur allt til að bera til að fara að sitja en hann er í einhverjum vandræðum með að finna jafnvægispunktinn hjá sér þetta er eins og í sundinu þá þegar þau eru látin standa i lófanum þá var alltaf eitthvað vandræði með hann hann varð aldrei almennilega stöðugur.  Við ætlum aftur á móti að gera okkar besta til að hjálpa honum en ég meina þetta er ekkert orðið eitthvað vandamál það væri annað ef hann væri orðinn svona 8 eða 9 mánaða þá væri þetta dolsið skrýtið en við höfum alveg nægan tíma.

Jæja nú er ég orðin sibbin ég nennni sammt ekki að fara frá tölvuni ég er að hlusta á Justin Timberlake og Straight up með Paula Abdul þið VERÐIÐ að dowload því lagi þetta lag er bara gamal og gottWink

Góða nótt alle sammen..........



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

guð minn góður, ég er svo sammála þér með geitungana, randaflugurnar, og köngulær !! ég er svo SKÍThrædd við þetta, verð alveg klikkuð ef þetta kemur nálægt mér hehe... þetta er kannski eikkað í ættinni ha ;)

ég var einmitt eikkað útí garði með voffann minn í fyrradag minnir mig það kom risa randaflug og flaug í áttina að mér og ég mér brá svo að ég hljóp að svalahurðinni og var næstum búnað loka á fótinn á mér og var svo mikið að flýta mér... hehehe, ekkert smá fyndið samt þegar maður fær svona flogakast í sambandi við flugu og er einn, og kannski fólk sem er að horfa í fjarlægð veit ekkert hvað er í gangi hahaha !! :)

kv. Dagbjört *knús*

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 15:51

2 Smámynd: Kallý

ég er ekki hrædd við geitunga (ekkert sérstaklega vel við þá heldur) en kóngulær eru ekki mitt uppáhald. Fæ reglulega kóngulóarmartraðir! Og randaflugur eru ekkert mál
En það er ógeðslega fyndið þegar maður sér fólk taka brjálæðiskast útaf geitungum! Hef séð það nokkrum sinnum.
Kemuru ekki í Body Combat á mánudag?????

Kallý, 27.4.2007 kl. 12:44

3 Smámynd: Erla Júlía Jónsdóttir

Já ég hef líka fengið köngulóa martraðir og randaflugu martröð.  Þegar ég fó að hugsa um það þá hef ég aldrei verið manneskjan sem er að keyra eða eitthvað álíka og séð einhvern taka svona flugu flipp ég hef alltaf verið manneskjan sem er að taka flugu flippið.

Með mánudaginn ég ætla að reyna mitt besta við erum nefninlega að fara parketleggja um helgina og þá á að vera búið á mánudaginn samkvæmt Davíð en ég ætla að taka því sammt með svona nettum fyrirvara en segjum að það sé svona 90% öruggt að ég mæti,  ég verð líka að fara að komast ég er búin að vera extra ódugleg núna undanfarið. 

Erla Júlía Jónsdóttir, 27.4.2007 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

196 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband