21.6.2006 | 22:45
21.Vika
21.vika þetta er allt að rúlla áfram ég var í mæðraskoðun í morgun og það kom allt mjög vel út við heyrðum hjartsláttinn sem er geggjað, litli púkinn minn sparkar í mig á fullu þannig það er nó að gera.
Sumarið virðist ætla að byrja að birtast hér loksins en það er spurning um hversu lengi það endist hhhmmmm....Annars er ég búin að vera doldið sibbinn núna síðastliðnu tvo daga það er líka ástæðan fyrir því að ég blogaði ekki í gær sem er allt í lagi.
Við höfum verið að segja vinum og vandamönnum kynið og það eru skondin viðbrögð frá eldra fólkinu sem talar stundum við mann eins og það hafi skift okkur ÖLLU máli hvort kynið það er. NEI það gerir það ekki auðvitað gerir maður sér fullkomlega grein fyrir því að númer 1.2 og 3 er að það sé í lagi heilsulega séð en ekki hvað en það er ekki þar með sagt að það sé ekki gaman að velta fyrir sér kyninu
Hér er fróðleikur um barn á 21.viku
Dúnmjúk hár umlykja nú allan líkama barnsins. Þetta lag hára mun vernda barnið næstu 3 mánuði frá ákveðnum efnum í vökvanum sem umlykur barnið. Lagið mun síðan leysast upp og hverfa áður en kemur að fæðingu. Þó mun svolítið verða eftir sem kemur til hjálpar og gerir barnið sleipt sem auðveldar fæðinguna. Barnið er nú 24 cm á lengd og 450 grömm.
Við fórum í brúðkaup þann 17.Júní hjá vini hans Davíðs það var rosalega fallegt það var í fríkirkjunni í Reykjavík þannig brúðhjónin fengu rosa athygli þegar þau löbbuðu út úr kirkjunni. Ég reyndi að vera algjör pæja búin að kaupa geggjaða sumarskó gullitaða flatbotna skó og ég meina KOMMON þetta á aðð vera solid þeir eiga ekki að meina mann en NEIIII maturinn var ekki byrjaður í veislunni og ég var að DEYJA OOOHHH ég brunaði heim þegar maturinn var búin og skipti um skó mmm það var svo næs.
Ég var líka sniðug og skilaði skónnum í dag það sást hvort sem er ekkert á þeim en allavega ég ætla að vera leiðinleg og ekki hafa þetta lengra næsta blogg???
Af sökum batterísleysis í myndavélum kemur bumbumynd seinna, mynd af því sem amma keypti og sónar myndir, en læt fylga 3d mynd af barni á 21.viku ekki okkar.
Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.