22.4.2007 | 23:19
Sumartöffarinn og Nýjar myndir
Hæ allir saman já ég og Jóhann Otti erum að bíða eftir sumrinu því hann er búin að fá eitt sumardress, kvartbuxur og stutterma bol, ég er búin að máta það og hann er geggjað flottur.
Af okkur er allt það besta að frétta við vorum að spælsa á han svona púsl plötur má eiginlega segja(kem með myndir af því seinna)og þær taka alveg 1/3 af stofuni enda full ástæða til því að hann rúllar sér út um allt. Hann Jóhann Otti á krúttlegasta pabba í heima við fórum í IKEA í dag og ákváðum að fá okkur ís og það var keyptur ís spes handa Jóhann Otta, jú hann fékk sér smá síðan borðuðum við hann en bara að hann hafi keypt spes handa honum fannst mér alveg gífurlega krúttlegt. Á miðvikudaginn þá fórum við í matarboð til Sæunnar sem var alveg gasalega gaman. Á fimmtudaginn þá vorum við nú bara eitthvað að dúllast við tvö en ég nennti ekki í skrúðgöngu en hún labbar frammhjá húsinu hjá mömmu og ég stóð þar fyrir utan og leifði honum að horfa á hana labba framhjá sem var rosalega spes þetta var eitthva skrítið það sást sko alveg á honum.
Á föstudaginn var svo ekkert gert nema um kvöldið þá var mér boðið í mat í frímúrarahúsinu sem var alveg ÆÐI þetta var svo góður matur og það er langt síðan að ég hef borðað yfir mig. Laugardaginn sváfum við út og síðan fór ég að vinna um kvöldið en Jotti í pösun til ólöf ömmu því Davíð fór í kveðju partý til vinar sína. Síðan var bara familíu dagur í dag við fórum reyndar á rölt í IKEA og núna í kvöld þá kom Dísa ogBaldur í heimsókn en ég var að vinna með þeim á sínum tíma á Hótwl Holti en núna búa þau í Danmörk en voru í stuttri heimsókn og komu til aðsjá Jóhann Otta og að sjálfsögðu okkur líka.
Á morgun og á miðvikudaginn þá fer hann í aðlögun til dagmömmunar og það verður gaman að sjá hvernig hann verður en miði við hvernig hann er þá hef ég fulla trú á að þetta verði ekkert mál. Vonandi þá verður nýji bílinn okkar tilbúin en við erum sem sagt að bæta við okkur tímabundið öðrum bíl Hondu Civic 92 árgerð, keyrðan, 65þús, sjálfskiptan og í toppástandi nema það eru einhver smá atriði sem þeir vilja laga áður en við fáum hann ein og stífleiki í hitastilli í miðstöð.
Já góðir hálsar það er bara búið að vera stemmning hjá okkur en núna ætla ég að fara að hátta og undirbúa mig fyrir morgundaginn.
Muna ath nýjar myndir
Góða Nótt Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
196 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vildi bara segja Hæjj :) :)
hvernig gekk hjá dagmömmunni í gær?
bið að heilsa öllum.... hafið það gott ;**
kv. Dagbjört :)
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 12:21
Það gekk rosalega vel þetta var ekkert mál hann verður í aðlöguninni í þessari viku ég læt vita hvernig gengur
Hvenær kemuru annars með nýtt blogg á síðuna þína
Knúsar...Erla og Jóhann Otti
Erla Júlía Jónsdóttir, 24.4.2007 kl. 15:37
Flott er :)
það fer alveg að koma nýtt blogg hjá mér.. er bara að búa til albúm og svona fyrir kanarí myndirnar.. kem svo með blogg og myndir og næstunni, þú fylgist með :)
*knús*
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2007 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.