Nýjar Myndir.....

Það eru komnar Nýjar myndir inn á 4 mánaða albúmið hans.


Svo ég snúi mér nú að öðru þá hefur Davíð verið duglegur að benda mér á stafsetningar villurnar í blogginu hjá mér og ég rekist sjálf á þær annað slagið en ég vildi bara segja ykkur að 95% af þessum villum er af því að ég skrifa kannski blogg og stundum skrifar maður of hratt og brussulega en ég gleymi alltaf að lesa yfir áður en ég ýti á ok, ég vildi bara deila þessu með ykkur því að sumar af þessum villum eru doldið fyndnar og ég vil ekki að þið haldið að ég sé alveg glötuð stafsetningu.

Já í tilefni að því að litli rassaprumpinn minn verður 6 mánaða núna á morgun 18.apríl  þá ætla ég að blogga aðeins um hann Jóhann Otta.

  • Fullt nafn Jóhann Otti Davíðsson
  • Hann er rosalega broshýr og glaður drengur og brosir framan í alla sem brosa framan í hann
  • hann lætur nánast bara heyra í sér ef eitthvað sé að t.d. þreyttur eða svangur
  • Það segja allir nema ein manneskja sem ég þekki(án gríns) að hann sé líkur pabba sínum og ég eigi voða lítið í honum.
  • hann á vin sem er hundur og heitir Bjössi,  Bjössi passar hann rosalega vel og sýnir að honum sé mjög ant um hann Jóhann Otta
  • Hann er alls ekki mannfæla(tja allavega ekki ennþá!!!!) það er hægt að setja hann í fangið á hverjum sem er og það er bara ekkert mál.
  •  þegar hann er í stuði þá iðar hann eins og ormur
  • honum finnst gaman að horfa á Bart Simpson
  • honum finnst ekkert skemmtilegra en þegar við förum í Kringluna eða Smáralindina og hann situr í kerruni og fær að horfa á allt fólkið, líka þegar við förum út að labba.
  • hann er alls ekki snuddu kall hann hefur aldrei tekið snuð nema fyrst núna og þá bara stundum þegar hann er að sofna, annars erum við ekkert að ota þessu að honum
  • hann á það til að klóra sér rosalega
  • hann er kitlinn
  • stundum þegar hann grætur þá er stundum eins og hann segji mamma en hann er það ekki það heyrist bara svona ma ma ma ma
  • Hann er HK-ingur og er búin að fara á sinn fyrsta handboltaleik með pabba sínum og var alveg stjarfur honum fannst þetta svo skrítið en sammt alveg rosalega gaman
  • hann getur ropað og prumpað eins og fullorðinn.

Jæja þetta er svona smá samantekt sem lýsir honum Jóhann Otta, spáið í því á morgun eru liðnir 6 mánuðir frá því ég lá upp á fæðingardeild að fæða gullið okkar, já það má segja að þennann örlagaríka dag breytist líf okkar Davíðs, ef eitthvað er þá bara til hins betra.  Þessi litli drengur hefur svo sannarlega fært okkur mikkla hamingju og gleði. 

Annars er nú það að frétta að það er önnur tönn byrjuð að þrýstast niður í efri góminum hjá honum en þær eru áðar ekki komnar það langt niður að það heyrist eitthvað ef maður mundi setja skeið upp í hann.  Hann er enn þá rosalega duglegur að velta sér yfir  á magann og liggur eiginlega eingöngu á maganum en við leggjum hann sammt alltaf á bakið svo gerir hann restina. Hann var að smakka tvennt nýtt í dag, fyrsta var bláberja skyr og það fannst honum sko gott. Síðan fékk hann stappaðann fisk og kartöflur með smjöri og það var pínu skrítið en hann át það með bestu list og svo heila krukku af ávaxtamauki í desert. Hann er líka farinn að borða brauð með lifrakæfu eins og pabbi sinn maður er farinn að þurfa  að kaupa tvö box svo allir fái.

Jæja ég læt þetta duga í bili.

Adios Erla og Jóhann Otti 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flottar myndir.

Kveðja

mamma 

Ólöf Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 23:17

2 identicon

vá, 6 mánaða litla krúttið ! :) mér finnst svoo ótrúlega stutt síðan að þú hringdir í mig og sagðist vera búnað eiga... vá hvað tíminn líður ;)

En til hamingju með strákinn á morgun...  :***  sætar myndir !! hann er algjör dúlla :)

      Hafið það gott :**

 Kv. Dagbjört frænka (sem VERÐUR að fara að koma í heimsókn!) :)

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 23:37

3 Smámynd: Kallý

Til hamingju með 6 mánaða afmælið Jotti

Kallý, 18.4.2007 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

196 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband