Góða helgi...................................

Já þá er það orðið staðfest að ég er komin með vinnu ég er semsagt nuna í maí, júní, júlí allavega og kannski framm í ágúst þá verð ég vaktstjóri á annari morgunverðavaktini á hótel loftleiðum spennó.  Ég get nú ekki sagt að vinnutíminn sé það skemmtilegur að ég ætli að halda upp á það en ég er semsagt að fara að vinna frá 6:00-13:00 omg ég þarf að fara að vakna á nóttuni og fara snemma að sofa....en það góða við þetta eru vaktirnar ég ég á svo kölluðum kokkavöktum sem ég nenni ekki alveg að útskýra nákvæmlega en basicly þá vin ég 15 daga í mánuði og er alltaf í fríi aðra hverja helgi næsí næs. Í endan júlía byrjun ágúst þá mun ég semsagt endursoða málin því að það er frekar líklegt að eftir 20.ágúst þá fær Jóhann Otti 8:00-15:00 pláss hjá dagmömmu.

HEYRÐU svo er nú varla frásögu færandi hehehe þið vitið að ég hef verið að segja ykkur ef Jóhann Otti hefur verið að velta sér yfir á mgan okei og það hefur kannski svona 4-5 sinnum gerst en svo gerðist það bara í dag að ég lagði hann á bakið á leikteppið sitt og hann velti sér á magann eins og ekkert sé og hann var bara í þessu allann daginn ég snéri honum annað slagið við og setti hann aftur á bakið en hann var ekki lengi að vippa sér yfir á magann, þetta var bara það heitasta í dag það var eins og hann vildi bara vera á maganum og ég ætla að vona að hann haldi þessu áfram þá líka í leiðinni styrkist hann enn frekar og þá verður stutt í að hann geti setið einn og óstuddur, ég og Davíð reynum líka svona einu sinni til tvisvar á dag að setjast niður með honum og láta hann sitja og þá styðja við hann, hann er nefninlega ekki orðin nógu stöðugur að það sé bara hægt að setja svona brjóstagjafapúða á bakvið hann.  

Ég veit ekki síðan hvað er í gangi með Jotta sko hann fær stundum svona exsem útbrot í andlitið og við erum dugleg við að bera réttu kreminn svona tl að minnka útbrot og kláða en núna eins og í kvöld þá var hann að klóra sér á enninu og hann gerir það svo rosalega fast og það skiptir ekki hvort ég sé nýbúin að taka neglurnar á honum í gegn hann gerir þetta sssvvvoo fast og núna tvisvar á stuttun tíma hefur hann náð að klóra sér til blóðs ekkert rosalega sammt það fossblæddi ekkert bara svona eitt lítið klín og svo var doldið skrítið að í kvöld þegar hann var að klóra sér á enninu þá var hann ekki einu sinni með útbrot á enninu.

Jæja best að drífa sig í bólið er nefninlega að fara vinna upp í Leifstöð á morgun í afmælinu þeirra.

Góða Nótt

Erla og Jóhann Otti



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Aldeilis fín vinna bara... til hamingju með það :) :*

Hafið það gott elskurnar :)

Kv. Dagbjört frænka :)  *knús*

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

196 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband