12.4.2007 | 15:31
Ungbarnaskoðun..
jæja við fórum í ungbarnaeftirlitið í dag og það gekk alveg rosalega vel hann er sem sagt orðin 70,5cm og 7720g, búin að þyngjast um og búin að þyngjast um 260g á einum mánuð. Hjúkkunni fannst þyngdaraukningin heldur lítil en hún sagði að þetta væri sennilega að hann væri bara farin að hreyfa sig meira sem hlítur að vera því við erum rosa dugleg að gefa honum eitthvað gott að borða: ).
Hann fékk sína þriðju sprautu og ein og áður þá gekk það bara áfallalaust, þeim leist allaveg alveg rosalega vel á hann barasta myndardrengur. Nú er þessu pjakkur alveg orðin hugfangin af gleraugunum það er rosa vinsælt núna að teyja sig í þau og reyna að taka þau en neibb mamma segir ó ó.
Nú fer sýningarþjálfaninar að byrja fyrir næstu hundasýningu sú fyrsta er 22.apríl sem þýði það að ég þarf að fara að hitta St.Bernhard dúlluna hann Argos ég vil nefnilega hitta hann fyrst og sjá hvernig við náum saman og hvort hann sé ekki svona þokkaleg hlýðinn svona áður en ég fer að mæta á æfingar með hann en þetta verður geggjað gaman svo sýni ég Nóa aftur litlu dúlluna mína sem stóð sig svo vel síðast(2.sæti) en nuna ætlum við að stefna á fyrsta sætið.
Jæja ég ætla fara að taka úr þvottavélinni og tjilla aðeins.
Hastala vista
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
196 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þið eruð líka algjört krútt. mamma
Ólöf Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.