10.4.2007 | 23:20
Góðir landsmenn nær og fjær........................
Hæ allir saman ég var búin að lofa bloggi og blogg skuluð þið fá.
Héðan er allt það besta að frétta hjá okkur páskahelgin búin (hefði vilja lengja hana) og hún var svona líka yndisleg á föstudagskvöldið bauð Tobba vinkona mér í mat og ég og Jóhann Otti skelltum okkur barasta saman til hennar og það horfðum við á X-factor og að sjálfsögðu vann kjútípæið ég var reyndar ekki sátt við síðasta lagið sem hann tók það var spilað allt of hægt og já látið mig ekki byrja á að hneykslast á dönsörunum sem voru með þessi bjévítans tilgangslausu prik að dansa úfff i could say a word ore two about that.
Á laugd var bara dúllað sér síðan um kvöldið þá fórum við í grill hjá tengdó og fengum svínakjöt og bakaðar kartöflu sem var rosa gott síðan ákváðum við bara að skella okkur fyrr upp í bústað(ætluðum á sunnudmorgun), við vorum nú ekki nema rétt tæpan 1og 1/2 uppeftir.
Síðan komum við upp eftir og við tók tjill á joggurum súkkulaðiát, lambalærisát, heiti potturinn og yndislegar stundir með börnonum og vinum. Á mánudaginn var síðan haldið heim og allir voru bara svona dasaðir eftir helgina. Á mánudagskvöldið skelltum ég og litli bróðir minn okkur í bíó á The Illutionist sem var bara fín mynd, ekki þessi túbíska hollywood formúla en samt góð svo sakar nú ekki að Edvard Norton var frekar hot í myndini. Síðan var það núna í nótt þar sem klósettið var vinsælt allaveg hjá Davíð, minn maður fékk gubbupest
en er reyndar á batavegi núna . Ég eyddi deginum í að þrífa pínu og síðan bauð ég m-mmu, pabba og lilla bro í mat og ég eldaði heilhveiti penne(pasta) seti það í eldfast mót síðan var ég búin að steikja hakk og bæta BBQ sósu í það og setti það yfir pasta og síðan ost yfir hakkið og inn í ofn bara þannig að osturinn bráðni og þetta var jummí borið framm með salati.
Jóhann Otti hefur það fínnt ég var ýkt stolt af honum í gær þar sem að hann velti sér heilan hring vvvííí hann er orðin pínu duglegri að velta sér. Það bólar því miður kkert á tönnslu ennþá en þetta kemur það er allaveg nó um slef. Það fer nú að styttast í að hann geti setið hann er orðin svoo sterkur alltaf þegar hann situr í bílstólnum sínum þá reynir að lyfta sér upp þannig að hann siti meira uppréttur hann gerir þetta líka stundum þegar hann hálf lyggur þá er eins og hann sér að gera magaæfingar. Annars er hann orðin engin smá ORMUR stellingarnar sem við erum að finna hann í rúmminu sínu eru alveg ótrúlegar , búina að snúa sér 180°í rúmminu, snúa sér yfir á magann og 180°
ma ma ma bar orðin pínu stressaður að hann fari sér ekki að voða neeeee það má ekki.
Ég tók mig til og gerði svona jemmelageð mauk ég semsagt gufu sauð mangó, sætkartöflur. peru, gulrætur, tómata og avacado rosa myndó síðan keypti ég bara litlar plastdollur setti í og frysti, núna er hann bara búin að smakka mangó og honum finnst það ÆÐI.
Það er ekki leiðinlegt að gera þetta og það er geggjað að geta gefið barninu sínu bara ávöxt beint í æð þetta gæti ekki verið hollara.
Jæja ég ætla að fara og reyna svæfa þennann orm hann var sofnaður síðan vaknaði hann þegar hann var eitthvað að nudda höndunum framan í sig og er núna bara að ormast.
Ég reyni að blogga aftur mjög fljótlega þannig að endilega fylgist með og veriði óhrædd við að kommenta (takið fænku mína til fyrirmyndar)þó það sé ekki nema bara eitt hæ.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
196 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ
Kallý, 10.4.2007 kl. 23:46
Jeijj
Erla Júlía Jónsdóttir, 11.4.2007 kl. 09:49
Hæjj :) gott að páskahelgin var ljúf hjá ykkur.. ooo, sumarbústaðastemning og notalegheit er alltaf svo kósý.. úff alltof langt síðan að maður hefur farið í sumarbústað.. verð að bæta úr því.. en svona er að vera með sjómanni og geta aldrei planað neitt frammí tímann... crap ! hehe ;)
*knús og kossar* :)
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 12:22
en eitt já.. hvað er msnið þitt? það væri gaman að geta spjallað stundum þar ;)
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 12:23
hey... mig langar líka í msn
Kallý, 12.4.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.