6.4.2007 | 00:39
Gleðilega Páskahelgi
Hæ allir saman jú nú eru páskar að renna í garð og lambalærin, lambahryggirnir og svínakjötið verður væntanlega vinsælt og ég tala nú ekki um uppáhaldið mitt sykurbrúnaðar kartöflur mmmm(hættulega gott).
Af okkur familíuni er allt það besta að frétta það bólar ekkert enn þá á tönnslum hjá Jóhann Otta en þetta kemur fyr en siðar. Nú þegar menn eru að verða 6 mánaða þá er komin tími á að maður fái að kynnast nýjum mat og þá alvöru mat ég fór í hagkaup og keypti sætkartöflur, tómata, avacado, mango og eitthvað fleira þetta ætla ég að fara að gufusjóða og gefa honum svona homemaid mat enda orðin þetta stór og alveg komin tími á að fara læra að borða. Jú þegar þið lesið sætkartöflur þá kannski tengið þið það beint við eitthvað sætt og óhollt tja nei sætkartöflur eru í raunini hollari en venjulegar þetta lærði ég í næringarfræði 102 og 202 sem er ekki slæmt því þær eru svo góðar mmmm. Já álið snýst núna um að gera þetta mest megnis heimalagað sem er ekki slæmt sérstaklega þar sem ég á gufusuðupott sem sildmenni mín í Sverige gáfu mér TAKK: )
Nú er hann líka farin að fá þriðju máltíðina sem sagt um kaffileitið sem er venjulegur hafragautur bragðbættur með einhverju góðu og þettta finnst honum bara nammi gott hann fær reyndar ekki mikið hann borðar ekki heila skál af hafragraut allaveg ekki svona til að byrja með en þetta mun aukast með tímanum.
jú ég er búin að vera frekar bisí síðan á þriðjudaginn því að hann Jón Gísli frændi minn var að fermast í dag (TIL HAMINGJU) og við erum búin að vera að undirbúa veisluna og þrífa húsið hans afa þar sem veislan var haldin. Þetta var glæsileg og flott veisla, boðið var upp á kökur, kaffi og gos og var vel mætt, stemmningin var góð og allir í sólskins skapi, Núna er veislan búin og þá tekur bara páskahelgin við, við familían erum að fara í mat tí ömmu Gunnu og afa Þorsteins á laugardagskvöldið og síðan erum við að far í sumarbústað á sunnudaginn, vinur hans Davíðs er með bústað yfir helgina og við ætlum að fara á sunnud og annars vinur hans kemur með sína familíu þannig ð það verður geggjað stuð.
Næst á dagskrá er að kaupa sér sund kort og fara í sund 1-2 í viku með Jóhann Otta og hafi einhver áhuga á að fara með þá eru allir velkomnir við stefnum af því að reyna að stunda að fara í Árbæjarlaug þar sem að innilaugin þar er með fullkomið hitastig fyrir svona litla kroppa.
Jæja ég er orðin sibbin ætla að far að kúra.
GLEÐILEGA PÁSKAHELGI.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
195 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilega páska sæta fjölskylda.. hafið það sem allra best og verum svo dugleg að borða hehe.. svona góðan mat fær maður sko ekki á hverjum degi.. namm !! ;) :**
kv. Dagbjört frænka og Sverrir
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 14:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.