25.3.2007 | 21:51
Helgin
Hæ allir saman það er nú kominn tími á eit gott blogg er þð ekki, helgin var nú ekki anasöm og það var ekkert sérstakt gert fyr en í dag þá vöknuðum ég og Jóhann Otti snemma og klæddum okkur og laumuðust út leifðum Davíð að sofa, við drifum okkur í Bónus að versla og síðan í smáralindina að kaupa afmælisgjöf handa Eyjólfi syni hans Einars vin hans Davíð. Hann verður eins árs á morgun en hélt upp á það í dag, ég man bara eftir því þegar hann var svona viku gamall og við vorum að koma í heimsókn til að sjá hann, jahérna hér hvað tíminn líður hratt.
Annars er nú voðalega lítið að frétta eitthvað kvefið hjá okkur er að hverfa og Litli sefur nú eins og steinn þannig að ég vaki ekki lengur að horfa á pretty woman heheh.
Það verður svaka stuð næstu helgi ég er að fara á föstudags kvöldið út að borða og skralla með stelðum sem ég var að vinna með, við erum að spá í að fara á Domo til Ragga sem er yfirkokkurinn og vinur okkar og gæða á einhverjum góðgætum hjá honum, síðan er bara planið að skella sér á tjúttið eða kannski svona semi tjútt því að ég má gera ráð fyrir því að þurfa að vakna á laugardeginum því Davíð er að fara vinna þannig að það þýðir ekkert að koma heim klukkann 5, 6
Það er sammt allt í lagi ég og mamma ætlum að fara í kringluna og versla pínu pons á Jóhann Otta því honum fer að vanta samfellur og annað smátterí og okkur konum þykir nú ekki leiðinlegt að versla ÓNEI.
Páskarnir er á næsta leiti og ég ætla ekki að kaupa páskaegg né skreyta, fyrir það fyrsta þá langar mig ekki að eiða páskonum í að úða í mig súkkulaði ég fer í eina fermingu og það er nó, hver skreytir??? jú mamma gerði það þegar ég var lítið en þetta er svo stuttur tími ég meina þetta er styttri tími heldur en jólin mér finnst þetta bara óóóóóþarfi sorrí. Litli/stóri frændi minn fermist núna 5. apríl jú hann er minni en ég í aldri en hann er meira en höfðinu stærri en ég í hæð : ) það verður rosa stuð veislan verður haldin heima hjá Sæmund afa og ef ég á að segja alveg eins og er þá veit ég ekkert hvað ég á að gefa honum en ég hef viku til að finna út úr því. Árni vinur hans Dave er með sumarbústað og það er hugmynd um að kíkja familían á sunnudeginum en ekkert ákveðið en það gæti orðið svaka stuð því Benni vinur hans er að spá í að fara líka þá er aldrei að vita nema að það verði dregin upp spil þegar það verður búið að svæfa krakkana og látið reyna á gáfurnar í einhverju skemmtilegu spili.
Jæja ég ætla að henda mér út í sjoppu að kaupa T2 sítrónu mmmm love it.
Adios amigos, Erla g Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
195 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.