Ávaxtastrákurinn

Já við vorum í ungbarna eftirlitinu í dag og það kom allt svo vel út, hann er orðinn 68.5cm og 7.440g og hún var rosalega ánægð með hann,  hann fékk líka sprautu sem var pís of keik ekkert farið að væla enda svo mikill nagliWink.   Hann er orðinn svo stór spáið í því hann verður 6 mánaða eftir mánuð vááá halló ég kom heim í gær af fæðingardeildinni (eða þannig).  Stundum finnst manni hann stækka of hratt og vill bara hafa hann svona litla beibí en stundum vill maður að hann fari að labba og tala á morgun svona er þetta: Þ

Hann er voða duglegur hann er ekki alveg búinn að ná að velta sér af bakinu yfir á magann en það vantar alltaf svo lítið upp á að það er fáránlegt þannig að þetta fer alveg að koma, hann er reyndar ekki farinn að sitja en ég læt hann nú sitja oft uppréttann og hann tekur alveg í með vöðvonum.  Vaxtakippirnir hjá honum eru stundum svo hraðir að reglulega þá þarf ég að fara í gegnum kommóðuna hjá honum og fara í gegnum ALLT og þá fer yfir yfirleitt svona 1/3 af fötonum sem betur fer þarf ég ekki að gera þetta oft ég hef þurft a gera þetta svona 3 sinnum síðan hann fæddist.

Nú hef ég það staðfest að Bumbo stóllinn er á leiðinni til ICELAND frá ameríkunni hún sagði að það tæki alt að 3vikur að koma hingað VÁ allt of langur tími en það verður bara gaman að fá hann.

Pabbi kom með í sundið síðasta föstudag og tók myndavélina með og tók alveg HELLING  af myndum og böns af köfunarmyndum ég er reyndar ekki búin að sjá þær en ég gæti alveg trúað því að þær væru geggjaðar og vonandi koma þær bara bráðlega inn á 123.is vefinn hans pabba.

Annars er minn maður bara orðinn alger ávxtastrákur þetta neta dæmi (mynd af neðar á síðunni) er að slá í gegn hann ELSKAR vatnsmelónur hann er líka búin að fá appelsínu sem var bara góð og peru líka en hún sló ekki eins vel í gegn af því að það er ekki eins miill safi í henni og hinum ávöxtonum sem hann er búinn að fá en þetta er alveg að slá í gegn og við höfum sko ekki við staðar numið við eigum eftir að prófa okkur áfram með fleiri ávexti. 

Annars er svo sum ekkert annað að frétta þannig að ég hef þetta ekki lengra.

ErlaInLove og Jóhann OttiPolice


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

195 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband