Helgin

Hæ alle sammen,

hér er allt það besta að frétta helgin var hin fínasta hún byrjaði á föstudaginn þá fórum jeg, Jotti og mamma á bókamarkaðinn í perlunni sem var æði ég keypti mér alveg 3 bækur Konur með einn í útvíkkun fá enga miskun(70 fæðingarsögur), Hunda handbókin og Vogin(bók um stjörnumerkið) síðan fékk Davíð bókina Vandinn að  verða pabbiJoyful og Jóhann Otti fékk meira að segja tvær bækur sem amma ólöf gaf honum önnur heitir Kindinn Kata og Hin heitir sofðu vært,  þó hann hafi nú ekkert vit á þessu þá er önnur bókin bara skræpótt af litum og augun galopnast þegar hann sér hana þar að auku jarmar hún ef maður tosar í spotta sem er framan á henni og hin er með stjörnu og mána framan á sér og ef maður ýtir á takka aftan á bókinni þá blikkar stjarnan og máninn og syngja lag. 

Síðan fórum við í sundið með hann og ólöf amma kom og horfði á sundkappann sinn sem var rosalega duglegur að kafa.

Á laugardaginn þá var hundasýningin og Davíð og Jóhann  Otti komu meira að segja að horfa á mig sýna.  Það gekk rosalega vel ég og Nói lenntum í 2 sæti sem er bara góður árangur miðað vð það að við höfum hvorug gert þetta áður, hann stóð sig allavega eins og hetja fyrir utan smá, tja ekki beint óhapp en athyglin hans var allt í einu ekki á réttum stað en það leið yfir,  þannig að næst þá er það ekkert minna nema 1. sætið.  Síðan um kvöldið þá fórum við til Sæu frænku og guðmóður í hálfgert stelpu kvöld því Ólöf amma var þar líka, þar fengum við okkur að borða og sáttum og spjölluðum og hjálpuðum Sæu að gera boðskort fyrir fermingu Jóns Gísla. 

Á sunnudaginn þá fórum við saman í Smáralind og versluðum smá og eftir það kíktum við til Jóa frænda guðfaðirs sem var svaka stuð.  Um kvöldið bauð Ólöf amma okkur síðan í lamb og brúnaðar sem við þáðum og nammi nammi namm hvað þetta var gott.  Hjá ömmu var kominn til skila Hókus Pókus stóll sem Árni Snær (litli bróðir minn) sat í þegar hann var lítill  en núna fær Jóhann Otti að sitja í þegar hann kemur í heimsókn til ömmu og leika í og það var rosa sport að sitja í honum þrátt fyrir að þurfa smá stuðning á bakið með púða en það var all í lagi hann lék sér bara.

Þannig að það var nó að gera hjá okkur um helgina, helgina sem átti að vera chill helgi fyrir utan hundasýninguna en svona er þetta bara heheh.

Ég var að koma heim úr Hamraborginni ég skrapp í móðurást og  ég var að fjárfesta í alveg gasalega sniðugum hlut handa rjómabollunni minni þetta er svona handfang með örfínun neti á endanum og inn í þetta net er hægt að setja ávexti og grænmeti(þegar kemur að því) hann fékk nefninlega að sjúga á vatnsmelónu um daginn og hún var svona líka góð og það er t.d. hægt að setja hana í netið og leift honum að halda á gaaasssaalega sniðugt.

Jæja þarf að taka úr þvottavélinni.

Adios ErlaInLove og Jóhann OttiPolice


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann er búinn að stækka ekkert smá þessi litli snúlli Voða líkur pabba sínum , Kveðja Hildur

Hildur (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

194 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband