1.3.2007 | 23:30
Nýjar myndir.....
Sem eru inn í Nýja albúminu Jóhann Otti4manaða.
Annars er það að frétta að við fórum í ofnæmis prófið í morgun og sváfu ekki yfir okkur og það gekk svona rosa vel. Hann er EKKI með ofnæmi fyrir neinu þá er allavega búið að útiloka það þannig að þetta er óofnæmistengt exem, læknirinn vill að ég beri krem á hann sem heitir Michael Classen sem er rakakrem í raunini al íslenskt krem og þegar það koma flekkir eða útbrot að bera þá Mildison sem er 1% sterakrem og sjá svo hvað setur annars er hann að fara í 5 mánaða skoðun 12.mars (omg ekki stækka meira) og þá gæti ég kannski fengið sterkara sterakrem ef það þarf eða bara hringt í þennan lækni sem við vorum hjá.
Annars var hann vigtaður bara svona ganni má segja og hann er orðinn 7.240g þannig hann er búinn að þyngjast um um 740g sem er bara gott hann heldur sig inn í kúrvuni. Síðan fékk hann sín fyrstu gúmmístígvél í dag, amma Ólöf gaf honum oooohhh hvað þau eru dúlllló þau eru svona krókodíla, allavega það er mynd af þeim inn á nýja albúminu hans. Finnst ykkur þau ekki SÆT?
Jæja mér langar heví í hrökkbrauð þannig ég nenni ekki að skrifa meira.
Blessbless
Erla og Rjómabollan
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
194 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þú gleymir alveg að segja frá að Afi hafi verið með hjá lækninum eins og ævinlega, að fylgja börnunum til læknis "just in case"!!!!!
Jón Svavarsson, 2.3.2007 kl. 00:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.