Ungbarnasundið

DSC02902Jæja þá erum við búin að fara í seinni tíman og það var nú bara allt annað líf hann notaði líkamann sinn mikklu meira en síðast hann sperti sig, hann spriklaði með fótonum og hreyfði sig bara mikklu meira það var bara eitt skipti sem það var aðeins farið að væla en það gekk fljótt yfir þannig þetta stefnir allt í rétta átt og við rosa spennt því sundkennarinn sagði að það væri nánast undantekningarlaust munur á þessum krílum eftir eitt svona námskeið þá meinar hún svona líkamlegur bara í styrk og öðru sem er að sjálfsögðu mjög jákvætt.

Ég fékk nú vægt sjokk um daginn þegar einhver spurði mig hvað hann væri gamall og ég er löngu hætt að telja vikurnar en ég sagði tæp fjögra mánaðar og um leið og ég sleppti orðinu þá fékk ég barasta sjokk þetta líður svo hratt eiginlega allt of hratt en svona er þetta bara.  Nú er planið að lengja fæðingarorlofið mitt aðeins semsagt ekki byrja að vinna í lok apríl heldur vera í fríi til lok júní það er nú aðallega gert af því að hann fer ekki í til dagmömmu fyr en í byrjun ágúst og ef ég færi að vinna í apríl þá væru alveg heilir þrír mánuðir sem þarf að redda í pössun ég sé það líka bara núna ég meika ekki að setja hann í pössun svona "lítinn" þannig að Davíð tekur sennilega síðasta mánuðinn sinn í Júlí og þá smellur þetta saman en þetta er allaveg stefnan að reyna að láta þetta ganga.

Annars er allt gott að frétta hjá okkur  uppþvottavélin okkar er í viðgerð og það lyggur við að maður sé þunglyndur (er það sammt ekki) því jeremías og jólaskór hvað það er leiðinlegt að vaska upp jú við gerðum það í Dalselinu þegar við áttum heima þar og þetta er svo sum ekkert mál þannig séð en ef maður er eitthvað latur þá safnast þetta svo hratt upp og það verður svo fljótt drasl og það meika ég ekki já ég skal alveg viðurkenna það að ég þarf að hafa hlutina í röð og reglu í kring um mig enda hefur ákveðinn aðili(Davíð) kallað mig Monicu (úr Friends) því hún er svona vill hafa allt vel skipulagt en ég get alveg sagt ykkur það ég er ekki eins slæm og hún nó vei.

Jæja ætla fara að horfa á imbakassan en með þessari færslu ætla ég að setja inn örfáar nýjar myndir í albúmið hans Jóhans Otta.

Kveðja ErlaInLove og Jóhann OttiBandit


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

191 dagur til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 105211

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband