30.1.2007 | 01:29
Nýjar myndir....
ég þarf væntanlega ekki að taka það framm á hvaða albúmi það er
.
Annars er það að frétta að framkvæmdinar eru loksins búnar ég get ekki sagt 100% búnar það vantar að fínisera einhver 3 eða 4 atriði sem er ekki neitt neitt þanig við erum núna pungsveitt að klára að þrífa og ég mun koma með myndir af baðinu seinna í vikuni. ég þakka uði fyrir að þetta sé búið ég höndla ekki svona róterí og drullu sem fylgir þessu ég get alveg viðurkennt það en svona er ég bara.
Jóhann Otti er farinn að hlæja mikið meira ótrúlegustu hlutir eru orðnir fyndnir í dag hjá honum og hláturinn hans gæti brætt 70 kíló af smjörlíki eru þið ekki sammála? Hann er líka orðinn rosalega sterkur og velti sér alveg sjálfur yfir á bakið 4 sinnum í röð í kvöld ekkert smá duglegur ég var eitthvað að reyna að taka það upp á myndband en það mistókst þannig ég reyni aftur fljótlega og skelli því inn á síðunna.
Síðan er febrúar að ganga í garð sem betur fer ég hata jánúar mér hefur alltaf fundist eins og jánúar sé einn langur mánudagur mér finnst árið aldrei byrja fyr en í febrúar nema hvað þetta er alveg afmælismánuður það eru fimm aðilar í fjólskilduni sem eiga afmæli þeir er Sæmi bróðir 1.feb, Rut mágkona 6.feb, Jakob Dagur frændi Jóhans Otta 7.feb, Dagbjört frænka 10.feb (eða 11 ruglast alltaf) og síðast en ekki síst han Davíð Þorsteinsson minn heittelskaði og barnsfaðir 26.feb(ef ég er að gleyma einhverjum þá fyrir framm sorrí), þannig að þetta er alveg slatti og ég hef ákveðið að stofna styrktarreikning fyrir þetta fólk svo ég geti keypt handa þeim afmælisgjafir.....................................................nei grín en þetta er nú sammt alveg slatti á einum mánuði
.
Jæja nú er mín farinn í hundana ég er byrjuð að æfa mig í að sýna hunda, næsta hundasýning er í mars en ég geri ekki rá fyrir að ég taki þátt þá því það er heldur stutt og ég vil æfa mig meira, ég og Hnoðri (hundur tengdó) förum á sunnudögum upp í reiðhöll gusts að æfa okkur ásamt örðum hundum sem eru að fara að sýna í mars síðan eru líka sumir hundar þarna sem eru ekki að fara að sýna en fólk er kannski að æfa sjálfan sig og hundinn. Síðasta sunnudag gekk rosalega vel hann stóð eins og hann átti að standa og hljóp með mér alger töffari en síðan þarf að stilla honum upp á borði og dómari skoðar hann strýkur honum og ath pung og tennur og þá var minn ekkert neitt rosa glaður en hann lét sig hafa það þessi elska er líka pínu lofthrædd já hundar geta verið lofthræddir góðir hálsar, en ég mun láta ykkur vita hvernig mér gengur.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra.
Endilega skrifið eitthvað í athugasemdir þarf ekki að vera neitt merkilegt frekar en þið viljið bara eitthvað.
Adios guys Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:31 | Facebook
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.