14.1.2007 | 04:29
Jæja...
var að koma heim úr veisluni og þetta var smá miskilningur hjá mér þetta var veisla á vegu Glitnis en ekki Kaupþings en engu að síður var þetta mjög flott veisla miðaða við það að þetta voru nokkur hundruð manns. Ég hef aldrei þjónað í svona stórri veislu en mjög gaman að prufa það allavega einu sinni. Þetta var ekki árshátíð eða neitt svoeiðis þeir voru að bjóða alskonar fólki úr þjóðlífinu t.d. Jóhannes í Bónus, Össur skarphéðins, Erla Júlía nei djók, Jón Sigurðsson og margir fleiri. Þetta gekk nokkuð áfallalaust salnum var skipt í 4 hluta eftir lit glum, rauðum, grænum og bláum síðan var einn stjórnandi á hverjum lit og tveir þjónar með 2-3 borð, síðan var maturinn keyrður á tvem stöðum í salnum og stjórnandinn stóð við það borð sem maður átti að leggja á og hún hélt hendini uppi á lofti og hélt á litlu ljósi svo að við sæjum hana því það var mikklu erfiðara en maður hélt að koma auga á konuna. Glitnir gerði kröfu á að það yrðu sem mest af lærðum þjónum þannig að ég hitti marga sem ég þekki úr bransanum alveg böns sem var bara gaman maður hittir þetta fólk eiginlega aldrei. Kvöldið gat sammt ekki gengið áfallalaust því þegar það kom að því að fara að koma kaffina á borðin þá var búið að safna saman svona pressukönnum sem mér persónulega þykir það bara ein fáranlegasta hugmynd í HEIMINUM því að við áttum að fara með könnur og bara hella í bollana en ekki setja neinar könnur á borðin HA!!! Svo var það teið nei góðan daginn þá duttu allar dauðar lýs úr mínu höfði það var einn já EINN te kassi fyrir allt þetta fólk WTF það bað maður mig um te okei ekkert mál en ég þurfti að byrja á því að fara og leita að te kassanum sem tók mig reyndar ekki eins langan tíma og ég hélt en sammt ég hlatraði hringinn um salinn(sökum Þess að ég var kominn með blöðru á litlu tánna) og loksins fann ok það reddaðist. Síðan undir lokinn var skipulagið orðið doldið mikið óskipulag en þetta var flott veisla hjá Glitni og skemmti atrðiðin bara þokkalega flott t.d. Diddú, einhver tenór, Páll óskar og síðan var Björk konana hans Gunnars Helgason veislustjóri og svei mér þá þetta er hress og fyndin kona og tala nú ekki um öryggið upp málað. Síðan kom sá tímapunktur að ég var orðin svo þreytt í fótonum(var í nýjum skóm) að minns gat bara ekki meir þannig ég skundaði heima og knúsaði kallana mína, bloggaði og ætla núna að fara að heimsækja draumaland.
Lov jú all
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 04:32 | Facebook
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.